Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 72
Starf sérfræðings á þróunarsviði Byggðastofnunar
Byggðastofnun leitar að öflugum liðsfélaga sem býr yfir frumkvæði, skipulögðum vinnubrögðum og getu til
að sinna rannsóknum. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 100%. Launakjör eru
samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
• Háskólamenntun á sviði félagsvísinda
• Reynsla og þekking af rannsóknum
• Færni í textagerð og miðlun rannsóknaniðurstaðna
• Góð færni í samskiptum
• Drifkraftur, metnaður og skipulagshæfileikar
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Kostur er að hafa vald á dönsku, norsku eða sænsku
Menntunar- og hæfniskröfur
Frekari upplýsingar veitir Sigríður Elín
Þórðardóttir, forstöðumaður þróunarsviðs,
sigridur@byggdastofnun.is
eða í síma 455 5455
Helstu verkefni
• Framkvæmd megindlegra og eigindlegra rannsókna og úrvinnsla gagna
• Skýrsluskrif og þekkingarmiðlun
• Þátttaka í mótun rannsóknarstefnu og rannsóknaráætlunar á sviði byggðamála
• Faglegur stuðningur við ýmis verkefni á sviði tölfræðigreininga
Aðalskrifstofa stofnunarinnar er í nýju húsnæði á Sauðárkróki en í samræmi við byggðastefnu stjórnvalda
er möguleiki á að ráða í starfið óstaðbundið, en skal það þó unnið utan vinnusóknar höfuðborgarsvæðisins.
Byggðastofnun hefur tekið saman og birt upplýsingar um mögulegar starfsstöðvar fyrir óstaðbundin störf sem
má finna á vefsíðu stofnunarinnar. Umsækjendur eru beðnir um að tilgreina ósk um starfsstöð í umsókn sinni.
Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknin getur gilt í allt að sex
mánuði frá birtingu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Senda skal umsókn til Byggðastofnunar, Sauðármýri 2, 550 Sauðárkróki eða á netfangið postur@byggdastofnun.is
Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2022
Mynd: KÞH
Framkvæmdastjóri hjúkrunar
Laust er til umsóknar starf framkvæmdastjóra hjúkrunar á
Reykjalundi endurhæfingu ehf. Um er að ræða 100% starf.
Allt að 50% hluti starfsins er þátttaka í klínískum verkefnum.
Framkvæmdastjóri hjúkrunar situr í framkvæmdastjórn
Reykjalundar og heyrir undir forstjóra. Hann ber ábyrgð
á hjúkrunarþjónustu starfseminnar á báðum meðferðar-
sviðum Reykjalundar. Jafnframt er hann sviðsstjóri á
meðferðarsviði 2. Hann skipuleggur og samhæfir faglegt
meðferðarstarf í samvinnu við aðra framkvæmdastjóra.
Hann tryggir mönnun hjúkrunarfræðinga í teymum og vinnur
að framgangi markmiða, stefnu og sýn Reykjalundar.
Hæfnis- og menntunarkröfur
• Íslenskt hjúkrunarleyfi skv. lögum 34/2012, um heilbrigðis-
starfsmenn.
• Klínísk framhaldsmenntun og/eða starfsreynsla á sviði
endurhæfingar og/eða stjórnunar.
• Þekking á rekstri heilbrigðisstofnana.
• Þekking og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu.
• Leiðtogahæfileikar og stjórnunarreynsla.
• Þekking og reynsla af mannauðsmálum.
• Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og metnaður í starfi.
Umsóknarfrestur er til 2. maí 2022.
Umsækjendum er bent á að ráðið er í þetta starf, sem og öll
störf í framkvæmdastjórn Reykjalundar, til 5 ára í senn með
möguleika á framlengingu til 5 ára í hvert sinn.
Upplýsingar um starfið veita
Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri
gudbjorg@reykjalundur.is – sími 585 2143
Pétur Magnússon forstjóri
petur@reykjalundur.is – sími 585-2140.
Umsókn skal skilað til Guðbjargar Gunnarsdóttur mann-
auðsstjóra Reykjalundar - gudbjorg@reykjalundur.is
Umsóknarform og upplýsingar um Reykjalund má finna á
www.reykjalundur.is
Reykjalundur endurhæfing ehf. Sími 585 2000 – www.reykjalundur.is
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
28 ATVINNUBLAÐIÐ 9. apríl 2022 LAUGARDAGUR