Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 74
Skólameistari
Kvennaskólans í Reykjavík
Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti
skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík.
Hæfni- og menntunarkröfur
Skólameistari veitir skólanum forstöðu, stjórnar daglegum rekstri og starfi
skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir,
aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Þá ber skólameistari
ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt auk þess að hafa frumkvæði
að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um
framhaldsskóla nr. 92/2008. Að auki gegnir skólameistari mikilvægu hlutverki
í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla og er
mikilvægt að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar.
Mennta- og barnamálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að
fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla
nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með
síðari breytingum. Skipað er í embættið frá 1. ágúst 2022.
Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2022.
Nánari upplýsingar er að finna
á vef Starfatorgs: starfatorg.is.
• Starfsheitið kennari ásamt viðbótarmenntun í stjórnun eða
kennslureynslu á framhaldsskólastigi.
• Umfangsmikil stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni.
• Þekking á fjármálum, rekstri og áætlanagerð.
• Reynsla af verkefnastjórn og stefnumótunarvinnu.
• Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í að skapa liðsheild á vinnustað.
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Skýr framtíðarsýn og hæfileiki til nýsköpunar.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
Laus kennslustörf við Grunnskóla
Hornafjarðar veturinn 2022-2023
• Aðstoðarskólastjóri á eldra stigi, afleysing í eitt ár.
• Umsjónarkennsla
• Heimilisfræðikennsla
• Náttúrufræðikennsla á unglingstigi 50%
• Sérkennsla
Umsækjendur skulu hafa tilskylda menntun og reynslu til starfsins og góð tök á íslensku bæði munnlega
og skriflega. Áhersla er á að umsækjandi sýni hæfni í samskiptum, frumkvæði, sé lausnamiðaður og hafi
skipulagshæfileika.
Launakjör samkvæmt kjarasamningi LS og KÍ eða annarra félaga. Umsóknum um starf skal skilað
skriflega til skólastjóra fyrir 24. apríl n.k. með upplýsingum um menntun, réttindi, starfsreynslu
og meðmælendur. Nánari upplýsingar veitir Eygló Illugadóttir skólastjóri í síma 470-8400 / 846-2227
- eyglo@hornafjordur.is
Í Grunnskóla Hornafjarðar eru um 250 nemendur í tveimur aðskildum húsum. Í öðru húsinu er í 1. – 6. bekkur en 7. – 10.
bekkur í hinu. Unnið er eftir hugmyndarfræði uppeldis til ábyrgðar og skólinn er bæði grænfánaskóli og heilsueflandi skóli.
Lögð er áhersla á teymisvinnu og innleiðingu fjölbreyttra kennsluhátta m.a. með því að auka ipadvæðingu. Í Grunnskóla
Hornafjarðar er góður starfsandi og skólinn er vel búinn. Sveitarfélagið er vel statt og þar er blómlegt mannlíf.
Kennarar
Verzlunarskóli Íslands auglýsir lausar stöður
kennara fyrir skólaárið 2022-2023.
Kennari í íslensku
Auglýst er eftir kennara í 100% starf í íslensku.
Kennari í viðskiptagreinum
Auglýst er eftir kennara í 100% starf í
viðskiptagreinum.
Hæfnikröfur:
Háskólapróf í viðkomandi greinum.
Kennsluréttindi.
Reynsla af kennslu í framhaldsskóla er kostur.
Við bjóðum:
Góða vinnuaðstöðu.
Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen,
skólastjóri.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl og skal senda
umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið
gunninga@verslo.is
Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 1000 nemendur.
Skólinn er bekkjaskóli. Nemendur geta valið á milli fjögurra mismunandi
brauta og útskrifast með stúdentspróf af öllum brautum. Samkvæmt
lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða
einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra
hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið.
Yfirþroskaþjálfi/
deildarstjóri
Kastalagerði
Ás styrktarfélag óskar eftir yfirþroskaþjálfa eða deildarstjóra
til starfa á heimili í Kastalagerði, Kópavogi.
Starfshlutfallið er 80 %, dagvinna og ein helgi í mánuði.
Staðan er laus frá 01.06.2022.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Ber ábyrgð á faglegu starfi í samvinnu við forstöðumann
• Ber ábyrgð á að þjónustuáætlanir séu uppfærðar og
byggðar á óskum íbúa og fagleg mati • Tryggir að sjálfsákvörðunarréttur íbúa sé virtur og að veitt
sé einstaklingsmiðuð þjónusta
• Veitir íbúum stuðning og ráðgjöf í daglegu lífi
• Setur sig inn í tjáningarform eða sérstakar aðstæður íbúa
• Eftirlit með líkamlegu og andlegu heilsufari íbúa
• Kemur að starfsmannamálum í samvinnu við forstöðumann
• Veitir starfsmönnum faglega fræðslu og ráðgjöf
• Vinnur að gæðaviðmiðum og lýsingum
• Staðgengill forstöðumanns í lengri fjarveru.
Hæfniskröfur:
• B.A.próf í í þroskaþjálfafræðum og starfsréttindi eða önnur
háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Þekkingar á sviði þjónustu við fatlað fólk og ríkjandi
hugmyndfræði
• Góð samskipta- og samstarfsfærni og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð almenn tölvukunnátta ásamt góðrar íslensku- og
enskukunnáttu
• Að minnsta kosti 3 eða 5 ára starfsreynsla í sambærilegu
starfi
Við hvetjum áhugasama, óháð kyni og uppruna að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 21.04.2022.
Nánari upplýsingar veitir Lára Rannveig Sigurðardóttir í síma 568-0206 á virkum dögum. Atvinnuumsókn ásamt
ferilskrá sendist á lara@styrktarfelag.is
Upplýsingar um félagið má finna á heimasíðu þess www.styrktarfelag.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Áss styrktarfélags.
Ás styrktarfélag hefur fengið vottun
á jafnlaunakerfi sitt samkvæmt ÍST 85:2012.
Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum
launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
30 ATVINNUBLAÐIÐ 9. apríl 2022 LAUGARDAGUR