Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 98
Í áfrýjunum lögmanna hennar til
æðri dómstóla var lögð áhersla á að
meint játning hennar væri óáreið-
anleg, enda hefðu yfirheyrslur yfir
henni ekki farið eðlilega fram. Þá
hefði rannsókn málsins og meðferð
þess fyrir dómstólum verið verulega
ábótavant.
Í einni áfrýjun náði málf lutn-
ingur lögmanna Melissu í gegn.
Alríkisdómstóll í New York féllst
á að hún hefði ekki notið stjórnar-
skrárvarinna réttinda sinna til full-
nægjandi málsvarnar. Yfirlýsingar
hennar í yfirheyrslum væru helstu
sönnunargögnin í málinu, en engin
gögn í málinu sýndu fram á að barn-
ið hefði verið drepið eða að Melissa
hefði nokkru sinni lagt hendur á
hana eða önnur börn sín.
Ári síðar breytti þessi sami dóm-
stóll niðurstöðu sinni á þeim for-
sendum að hann hefði ekki lögsögu
í málinu. Þá var aðeins síðasta dóm-
stigið eftir, en í október á síðasta ári
synjaði Hæstiréttur Bandaríkjanna
beiðni um að taka mál Melissu fyrir.
Í febrúar síðastliðnum var Mel-
issu tilkynnt um aftökudag, 27. apríl
2022. Í kjölfarið hófst loka atlagan
við að bjarga lífi hennar með undir-
búningi beiðni til ríkisstjóra Texas
um að stöðva aftökuna.
Skoðar alla áhættuþætti
„Þetta var með mjög stuttum fyrir-
vara. Það var í febrúar að ég var
beðinn að koma inn í málið,“ segir
Gísli, en í sérstakri beiðni til ríkis-
stjóra Texas er farið fram á að aftök-
unni verði frestað eða hún stöðvuð.
Meðal lykilgagna í beiðninni er sér-
fræðiálit Gísla um að svör Melissu í
yfirheyrslunni beri öll einkenni
falskrar játningar.
„Í máli Melissu notaði ég það
sem ég hef þróað í tengslum við
Guðmundar- og Geirfinnsmálin.
Ég er með módel í þróun sem ég
nota í þessa vinnslu,“ segir Gísli og
skýrir módelið þannig að með því
séu dregnir upp þeir áhættuþættir
sem gefi til kynna hvort og hversu
áreiðanleg játning er.
„Það er í fyrsta lagi að líta á bak-
grunn viðkomandi, hans eða henn-
ar forsögu. Það er einn þátturinn og
annar þáttur er í hvaða samhengi er
verið að taka viðkomandi til yfir-
heyrslu. Í þriðja lagi þarf að rann-
saka yfirheyrslurnar sjálfar,“ segir
Gísli, en í máli Melissu hafði hann
myndband af allri yfirheyrslunni.
„Ég gat rannsakað það og notað
vissa aðferðafræði til að meta álagið
sem kom fram, hvernig lögreglu-
mennirnir fimm höguðu sér, hvern-
ig viðbrögð hún sýndi og annað sem
fram kemur á upptökunni.
Svo er fjórði þátturinn og það eru
persónulegir þættir sem varða ein-
staklinginn sjálfan. Það getur verið
Melissa Lucio
var tæplega
fertug þegar
hún var hand-
tekin vegna
andláts dóttur
sinnar árið
2007. Myndin
er úr einkasafni
og birt með
leyfi Innocence
Project.
forsaga, ofbeldi til dæmis. Forsagan
skiptir miklu máli til að sjá hversu
viðkvæmir einstaklingar geta verið,“
segir Gísli, en í forsögu Melissu er
of beldi sem hún varð fyrir bæði í
æsku og í hjónabandi sem hún gekk
í aðeins sextán ára gömul.
„Þegar ég skoða þessa persónu-
legu þætti þá lít ég á hvað var að
gerast við yfirheyrsluna sjálfa,
hvernig voru viðbrögð konunnar
eða einstaklingsins, hvað er hægt
að lesa úr því. Eins skoða ég það
sem ég kalla verndarþætti, hvort
viðkomandi fékk einhverja aðstoð
við yfirheyrsluna eða hvort hann
eða hún er algerlega ein á báti.“
Gísli segir að fram til þessa hafi
málsvarnarteymið lagt fram ýmis
gögn sálfræðinga en hver og einn
þeirra hafi aðeins skoðað afmark-
aða þætti í málinu. Hann segir
vandamálið oft í málum af þessum
toga að samhengið vanti. Heildar-
myndina. „Í þessu máli var enginn
sem hafði getu eða þekkingu til að
geta litið á allt málið í heild. Þetta
eru svo margir þættir sem spila
þarna inn í. Mitt hlutverk var að líta
yfir málið í heild, sem aldrei hafði
verið gert.“
Auk þess að meta heildstætt gögn
málsins lét Gísli leggja tvö próf fyrir
Melissu. „Hún var prófuð að minni
beiðni. Ég stakk upp á því að það
yrðu vissir þættir sem höfðu aldr-
ei verið rannsakaðir sem þurfti að
rannsaka og það voru fengnir sál-
fræðingar til að gera það. Þeir gerðu
sefnæmisprófið mitt og undanláts-
prófið, sem hjálpaði mér að fá betri
heildarmynd,“ segir Gísli, en þessi
próf sem Gísli hefur þróað voru
einnig lögð fyrir sakborninga í Guð-
mundar- og Geirfinnsmálum.
„Það er augljóst hver vandi þess-
arar konu var og hve illa var staðið
að þessu,“ segir Gísli. Niðurstaða
hans er að áhættuþættir sem hann
rannsakaði og eru til staðar í máli
Melissu valdi mikilli hættu á að yfir-
lýsingar hennar séu óáreiðanlegar.
Í grein í breska miðlinum The In-
dependent, lýsir Gísli sannfæringu
sinni um sakleysi Melissu.
Aðspurður segir Gísli að ríkis-
stjórinn sé tilneyddur að taka
afstöðu í máli Melissu vegna fram-
kominnar beiðni. Það gerist hins
vegar oft ekki fyrr en alveg á síð-
ustu stundu. „Það er einhver hefð
fyrir því að bíða nánast alveg fram
á síðasta dag eða svo gott sem. En
ríkisstjórinn verður að taka afstöðu.
Annað hvort hafnar hann beiðninni
eða stoppar aftökuna.“
Fallist ríkisstjórinn á beiðnina er
líklegast að dauðadómnum verði
breytt í lífstíðarfangelsi, að sögn
Gísla. Hann segir þó einnig mögu-
legt að verjendateymi hennar verði
gefinn einhver frestur til að sýna
fram á að játning hennar hafi verið
fölsk. Fari svo er möguleiki að hún
fái mál sitt endurupptekið í því
skyni að fá sakfellingardómnum
sjálfum hnekkt.
„Þetta er töluvert mikið af nýjum
upplýsingum í málinu og það er
búið að sanna líka margt um hve illa
var staðið að rannsókninni. Þetta er
ekki bara einhver ein rannsókn eða
ein skýrsla frá mér. Ég er bara hluti
af þessu teymi,“ segir Gísli og bætir
við: „Það er ekki bara einhver einn
sem kemur og bjargar málunum
heldur mjög margir sem koma að
þessu. Það þarf svo mikið teymi og
mikla vinnu til að hnekkja svona
málum.“
Það má aldrei gefast upp
Eins og fyrr segir á Gísli glæsilegan
feril á sínu sviði. Þótt hann sé kom-
inn á eftirlaun tekur hann enn að
sér mál, ekki síst í því skyni að læra
meira. „Vísindin hafa þróast mjög
mikið undanfarin 40 ár,“ segir Gísli,
en aðferðin sem hann notar í máli
Melissu er meðal annars byggð á
Guðmundar- og Geirfinnsmálum.
„Ég hef haft svo mikið að gera frá
því í júní að ég hef varla getað tekið
mér dagsfrí. Hvert málið á fætur
öðru kemur til mín og allt mjög
flókin mál,“ segir Gísli. Hann tekur
aðeins að sér f lóknustu málin og
segist ekki taka þau mál sem aðrir
geti unnið. „Það er bara þegar þetta
er komið í einhverja klemmu og
enginn ræður við það að þá er leit-
að til mín til að leysa málið,“ segir
hann. Geysilega mikil vinna liggi
bak við hvert og eitt mál því fara
þurfi ítarlega yfir öll gögn og fara
yfir alla áhættuþætti sem geti haft
áhrif, hversu alvarlegir þeir eru og
hvað þeir segja varðandi áreiðan-
leika játninga sem voru gefnar við
slíkar aðstæður.
„Ég er ekki að gera þetta nema
af því að ég veit að ég get aðstoðað
og það er ekki hægt að finna ein-
hvern annan sem ræður við svona
flókin mál. Ég geri það bara til þess
að hjálpa til að fá réttlæti. Það sem
keyrir mig áfram er bara sanngirni
og réttlæti og lærdómur. Við lærum
svo ofsalega mikið af hverju máli. Þá
getur maður notað þá þekkingu til
að byggja upp vísindin.“
Gísli segir að hvert svona mál sé
mikil barátta og það þurfi að hafa
mikla þolinmæði. Hann tekur
Guðmundar- og Geirfinnsmál sem
dæmi. „Ég sá það strax þegar ég
fór að vinna við málið að skýrsla
innanríkisráðherra 2013 var bara
byrjunin,“ segir hann, en í þeirri
skýrslu var meðal annars mat um
áreiðanleika játninga.
„Það var bara byrjunin. Þetta er
ekki bara eins og maður vinni ein-
hverja skýrslu og geti svo bara farið
heim og slappað af. Þetta er endalaus
barátta. Í svona flóknum málum þarf
bara alltaf að halda áfram og áfram
og safna meiri gögnum og gefast
aldrei upp. Þetta er alltaf barátta en
það má aldrei gefast upp. Það sem
skiptir máli er réttlæti gagnvart ein-
staklingunum.“ ■
Réttarsálfræð-
ingurinn Gísli
Guðjónsson
hefur þróað
módel, meðal
annars byggt
á Guðmundar-
og Geirfinns-
málum, sem
notað er til að
prófa áreiðan-
leika játninga í
sakamálum víða
um heim.
Fréttablaðið/GVa
Það er bara þegar þetta
er komið í einhverja
klemmu og enginn
ræður við það að þá er
leitað til mín til að
leysa málið.
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir á
sk
ilja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra.
Verona
BEINT FLUG Í ALLT SUMAR
Flugsæti
595 1000 www.heimsferdir.is
19.950
Flug aðra leið frá
Flugsæti
38 Helgin 9. apríl 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið