Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 86
Verkefnin
eru fjöl-
breytt og
fáum við
tækifæri til
að ræða
við fólk úr
ýmsum
geirum
atvinnu-
lífsins.
Björg Ýr
Jóhannsdóttir
Það sem
mér finnst
skemmti-
legast er
þegar við
náum að
aðstoða
viðskipta-
vini við að
sjá aukið
vægi í
gögnunum
sínum.
Sylvía Rut
Vilhjálmsdóttir
KPMG er leiðandi þekk-
ingarfyrirtæki sem veitir
þjónustu á sviðum endur-
skoðunar, uppgjörs og
bókhalds, skatta og lögfræði
og ráðgjafar. Þar starfa sér-
fræðingar á sviði upplýs-
ingatækni með metnað til að
vinna af heilindum.
Björg Ýr Jóhannsdóttir starfar sem
sérfræðingur hjá fyrirtækinu. í
hennar starfi felst að gera úttektir
á upplýsingaumhverfi fyrirtækja
og veita ráðgjöf í upplýsingaöryggi.
Björg er með B.Sc. í tölvunar
fræði og starfaði sem forritari í
sjö ár. Hún bætti seinna við sig
mastersgráðu í reikningsskilum og
endurskoðun. Hún segir að námið
nýtist sér vel í starfinu.
„Þessi blanda, tölvunarfræði og
viðskiptafræði, er mjög gagnleg.
Notendur upplýsingakerfa og
þeir sem skrifa kerfin skilja ekki
endilega alltaf hvert annað. En
ég samtvinna þetta og tala bæði
tungumálin,“ segir hún.
Meðal verkefna sem koma á
borðið hjá henni er að skoða og
greina stöðu netöryggismála, en
netöryggi (e. cybersecurity) er ein af
mikilvægustu áskorunum stjórn
enda í dag. Ýmsar upplýsingatækni
úttektir í tengslum við fjárhags
endurskoðun eru líka algengar.
Upplýsingar
eru verðmæti
Sylvía Rut Vilhjálmsdóttir, Björg Ýr Jóhannsdóttir og Eva M. Kristjánsdóttir, hafa metnað fyrir störfum sínum hjá KPMG. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
„Verkefnin eru fjölbreytt og
fáum við tækifæri til að ræða við
fólk úr ýmsum geirum atvinnu
lífsins. Í úttektum erum við að
skoða margs konar kerfi, til dæmis
fjárhagskerfi, gagnagrunna og
fleira. Við bendum fyrirtækjum á
þá veikleika sem við komum auga
á og leiðbeinum oft með úrbætur,“
segir hún.
„Ég hef líka fengið tækifæri til
að vinna með KPMG Bretlandi í
upplýsingatækniúttektum sem
eru af allt annarri stærðargráðu en
verkefnin hér heima. KPMG hefur
líka mjög gott tengslanet um allan
heim sem hægt er að leita í eftir
ráðgjöf og upplýsingum.“
Starfa með fjölbreyttum hópi
Eva M. Kristjánsdóttir er verkefna
stjóri hjá KPMG. Eva er með M.Sc.
gráðu í alþjóðaviðskiptum og
hefur starfað hjá KPMG við ráðgjöf
í upplýsingatækni frá 2015. Hún
hefur sótt ýmsa þjálfun og nám
skeið í tengslum við starfið, þar
á meðal faggildingu í vottun skv.
staðlinum ISO27001 um stjórn
kerfi upplýsingaöryggis.
„Upplýsingar eru verðmæti og
þær liggja víða. Það er mikilvægt
að tryggja rétta meðferð þeirra, að
aðgengi að upplýsingum sé stýrt
og þær séu tiltækilegar þegar á þarf
að halda. Ég aðstoða fyrirtæki og
stofnanir varðandi upplýsinga
öryggismál, persónuvernd og net
öryggi. Ég sinni einnig úttektum
á fylgni við staðla, lög og reglur
varðandi persónuvernd, net og
upplýsingaöryggi,“ útskýrir hún.
„Við störfum með mjög fjöl
breyttum hópi viðskiptavina með
mismunandi þarfir, allt frá stórum
alþjóðlegum fyrirtækjum, félögum
sem skráð eru í kauphöll, til lítilla
aðila með aðeins nokkra starfs
menn, sveitarfélögum og ríkis
stofnunum.
Verkefnin eru mismunandi og
eins kröfurnar sem gerðar eru til
þessara aðila, þannig að það er
mikil fjölbreytni í starfinu og það
krefst þess að maður sé sífellt að
sækja sér nýja þekkingu, ásamt því
að skapa tæki og tól til að vinna á
sem skilvirkastan hátt og skila sem
bestu virði til viðskiptavinanna.“
Hún segir starfið krefjandi
og í mörg horn að líta. En það sé
skemmtilegt þegar vel tekst til og
það næst að koma á umbótum sem
skila sér í breytingum til batnaðar.
„Eitt af því skemmtilegasta í
starfinu er að ég er í samskiptum
við ólíkt fólk með mismunandi
bakgrunn, stjórnendur og stjórnir,
millistjórnendur og almenna
starfsmenn,“ segir hún.
Blanda af fræðum og list
Sylvía Rut Vilhjálmsdóttir starfar
sem sérfræðingur á ráðgjafasviði
KPMG. Hún segir starfið aðallega
felast í því að greina og setja fram
gögn þannig að auðvelt sé fyrir
stjórnendur að taka stefnumiðaða
ákvörðun.
„Framsetning gagna getur verið
í alls konar formi en það er mikil
eftirspurn eftir sjálfvirkum fram
setningum á skýrslum, rekstrar
mælaborðum og almennum
gagnagreiningum.
Viðskiptagreind snýst um það
að umbreyta gögnum í verðmætar
upplýsingar sem styðja notandann
við að taka rétta og tímanlega
ákvörðun.
Gögn eru oft og tíðum umfangs
mikil og vannýtt auðlind í rekstri
fyrirtækja en með viðskipta
greind – t.d. PowerBI – er auðveld
lega hægt að umbreyta gögnum í
verðmætar upplýsingar,“ útskýrir
Sylvía og bætir við að viðskipta
greind sé mikilvæg til þess að sjá
heildarmyndina, hvort sem það er
til þess að greina eldri upplýsingar,
rauntíma eða spá fyrir um hvað
muni gerast á næstunni.
Sylvía segir að starfið sé ákveðin
blanda af fræðum og list.
„Fræðin við að greina gögnin
og listin við að setja gögnin fram
þannig að það sé gaman og auðvelt
að lesa úr þeim. Það sem mér finnst
skemmtilegast er þegar við náum
að aðstoða viðskiptavini við að
sjá aukið vægi í gögnunum sínum
og mögulega gera daglega ákvörð
unartöku þeirra auðveldari,“ segir
hún.
Sylvía er verkfræðingur en hún
segir að verkfræðin hafi undirbúið
hana vel fyrir alls konar greininga
vinnu og vinnslu á gögnum.
„Ég lagði mikla áherslu á
aðgerðagreiningu í verkfræðinni,
sem gerir mér kleift að túlka og
útbúa líkön út frá þörfum við
skiptavina. Í vinnunni styðst ég
mikið við aðferðafræði eins og
breytingastjórnun við framsetn
ingu á gögnum,“ segir hún.
„Starfið er fjölbreytt enda eru
verkefnin og þarfir viðskiptavina
mismunandi. Fjölbreyttur hópur
af bæði viðskiptavinum og starfs
fólki gerir það að verkum að ég á í
samskiptum við mjög ólíkt fólk.“ ■
8 kynningarblað 9. apríl 2022 LAUGARDAGURkonUr í Upplýsingatækni