Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 6
Í nýrri móttökumiðstöð fyrir
flóttafólk er öll þjónusta fyrir
fólk á einum stað. Það talar við
lögreglu, fær heilsufarsskoðun
og getur svo farið á fund Fjöl-
menningarseturs þar sem því
er úthlutað húsnæði.
lovisa@frettabladid.is
SAMFÉLAG Miðstöðin var opnuð
formlega í vikunni en hún er bæði
fyrir þau sem koma vegna átakanna
í Úkraínu, en einnig fyrir þann
fjölda fólks sem kemur hingað frá
öðrum löndum eins og Venesúela,
Palestínu og öðrum löndum.
Aðgerðastjóri móttöku f lótta-
manna er Gylfi Þór Þorsteinsson
en hann fer beint í verkefnið úr far-
sóttarhúsunum.
Móttökumiðstöðin á að ein-
falda ferli umsókna um vernd og
auðvelda umsækjendum að sækja
þjónustuna, en nú er hún öll á
einum stað. Miðstöðin er staðsett
á Egilsgötu í miðbæ Reykjavíkur
þar sem læknamiðstöðin Domus
Medica var áður.
Þegar gengið er inn er að finna
móttökusal þar sem umsækjendur
um vernd taka númer og fá fyrst
númer merkt A og fara þá niður
og hitta lögregluna. Að því loknu
fara þeir aftur á bið en þá á núm-
eri merkt B og fara þá í heilsufars-
skoðun. Auk þess er öllum boðið að
fara í Covid-próf og svo út frá niður-
stöðum ýmissa heilusfarsprófa er
fólkinu boðið að þiggja þær bólu-
setningar sem það hefur ekki enn
þegið, ef það vill.
Ein af ástæðunum fyrir því að
móttökumiðstöðin er í þessu hús-
næði er að þar er að finna Röntgen
Domus, en vegna þess að berklar
eru landlægir í Úkraínu fara allir
f lóttamenn eldri en 15 ára sem
koma þaðan í berklapróf sem felst
í því að tekin er röntgenmynd af
lungum þeirra. Þau sem eru undir
15 ára fara í berklapróf á húðinni
en það tekur um tvo sólarhringa að
fá niðurstöður úr því.
„Allir f lóttamenn sem koma frá
löndum þar sem berklar eru land-
lægir fara í berklapróf,“ segir Gylfi
og að myndirnar séu ekki notaðar
til að skoða neitt annað.
„Það eru alls konar sjúkdómar
landlægir víða um heim sem ekki
eru hér, auk þess sem fólk á Íslandi
er bólusett fyrir ýmsu, og börn sem
ekki eru bólusett úti. Þetta er því
gert með þeirra hagsmuni að leiðar-
ljósi en einnig til að koma í veg fyrir
dreifingu sjúkdómanna hér,“ segir
Gylfi.
Hann segir að fyrir ferðamenn
sem koma frá sama svæði þá þurfi
þeir ekki endilega að sýna fram á
bólusetningar- eða smitvottorð, því
það á ekki í sama samneyti við fólk
sem hér er búsett og þau sem hingað
koma á flótta.
Það er að sögn Þóris Björns Kol-
beinssonar, yfirlæknis á göngudeild
sóttvarna, algerlega staðlað að prófa
fyrir berklum, en fyrir þann hóp sem
kemur frá Úkraínu hafa verið gerðar
þær breytingar að farið er niður í 15
ára með myndatökur en fyrir fólk
frá öðrum löndum er miðað við 18
ára aldur.
„Við á göngudeild sóttvarna erum
með stöðuga móttöku fyrir alþjóð-
lega hælisleitendur,“ segir Þórir, en á
göngudeildinni starfa aðeins fimm
manns og var þess vegna ákveðið,
vegna umfangs flóttafólks frá Úkra-
ínu, að setja upp sérstaka miðstöð
fyrir það.
„Við erum allt árið með læknis-
skoðanir í gangi og hingað til hafa
hælisleitendur komið á göngudeild
sóttvarna en núna þegar fjöldinn er
svona mikill, sem þarf að þjónusta
svona hratt, þá þurfti að nota aðrar
aðferðir,“ segir Þórir.
Það er þó fyrir þau, og aðra
sem koma, nokkuð staðlað hvaða
heilsufarsrannsóknir eru gerðar, en
þær miða að miklu leyti við aldur,
að sögn Þóris.
„Það sem allir fara í er yfirleitt
að leitað er fyrir lifrarbólgu B og
C, alnæmi og sárasótt. Þetta er allt
rútína. Þetta er gert fyrir alla ald-
urshópa en svo getur verið munur
á því hvort það er tekin röntgen-
mynd af lungum eða hvort það er
lagt fyrir berklapróf.
Vanalega eru mörkin metin eftir
því hversu lengi einstaklingurinn
ætlar að vera á Íslandi hvaða aðferð
er valin,“ segir Þórir og að þegar
tekin er mynd þá sé verið að leita
að berklum. ■
Skima flóttafólk í nýrri móttökumiðstöð
Allt fólk á flótta
getur farið í
miðstöðina,
sótt um vernd,
talað við lög-
reglu og farið
í heilsufars-
skoðun.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
ALICANTE GOLF RESORT
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS
ÆFÐU SVEIFLUNA Á ALICANTE
INNIFALIÐ Í VERÐI:
ÓTAKMARKAÐ GOLF
INNRITUÐ TASKA 20 KG OG HANDFARANGUR
GOLFBÍLL INNIFALINN
FLUTNINGUR Á GOLFSETTI
VAL UM MORGUNVERÐ EÐA HÁLFT FÆÐI
ÍSLENSK FARARSTJÓRN
AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI
19. - 25. APRÍL VERÐ FRÁ 199.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
20. - 25. APRÍL VERÐ FRÁ 179.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
20. - 28. APRÍL VERÐ FRÁ 254.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
24. - 28. APRÍL VERÐ FRÁ 159.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
24. APRÍL - 03. MAÍ VERÐ FRÁ 269.500 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
Komdu með til Alicante, hitaðu upp fyrir sumarið á
Spáni. Í þessum ferðum til Alicante Golf Resort getur
þú ráðið lengdinni á þinni ferð.
olafur@frettabladid.is
NEYTENDUR Mat vælav í sit a la
Matvælastofnunar Sameinuðu
þjóðanna, FAO, hækkaði um 12,7
prósent milli febrúar og mars og er
þetta mesta hækkun milli mánaða
í 14 ár.
Framboð af korni og jurtaolíum
hefur dregist mjög saman vegna
stríðsins í Úkraínu og telur Mat-
vælastofnunin að þetta geti valdið
miklu tjóni í fátækari löndum
heims.
Í þróuðum hagkerfum fara um 17
prósent útgjalda neytenda til mat-
arinnkaupa, en í þróunarríkjum er
hlutfallið mun hærra. Til dæmis fara
um 40 prósent útgjalda almennings
í Afríku, sunnan Sahara, til matar-
innkaupa.
Mestar hafa verðhækkanir verið
á jurtaolíum, sem hækkuðu um
23,3 prósent milli mánaða og hafa
hækkað um 56 prósent síðustu 12
mánuði, og korni sem hækkaði um
17,1 prósent milli mánaða og 37 pró-
sent milli ára.
Síðustu 12 mánuði hefur mat-
vælavísitalan hæk kað um 34
prósent. Sérfræðingar Matvæla-
stofnunarinnar óttast að frekari
hækkanir séu í pípunum, á bilinu
8-22 prósent.
Þessi mikla hækkun matarverðs
er í takti við verðkannanir Verita-
bus og ASÍ hér á landi undir síðustu
mánaðamót, sem fjallað hefur
verið um í Fréttablaðinu. Talið
er að verðhækkanir á matvælum
vegna stríðsins í Úkraínu séu ekki
komnar inn í mælingar hér á landi
og því geta miklar hækkanir verið í
pípunum. ■
Mestu hækkanir á mat í fjórtán ár
Meiri verðhækkanir eru í pípunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Núna þegar fjöldinn er
svona mikill, sem þarf
að þjónusta svona
hratt, þá þurfti að nota
aðrar aðferðir.
Þórir Björn
Kolbeinsson,
yfirlæknis á
göngudeild
sóttvarna
Allir flóttamenn sem
koma frá löndum þar
sem berklar eru land-
lægir fara í berklapróf.
Gylfi Þór Þor-
steinsson,
aðgerðastjóri
móttöku flótta-
manna
6 Fréttir 9. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ