Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 45
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með störfunum hafa Jensína K.
Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Hildur
J. Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is).
Vilt þú vinna við
að skapa eitthvað nýtt?
Hlutverk IÐUNNAR er fyrst og fremst að
bæta hæfni fyrirtækja og starfsfólks í iðnaði.
Það er gert með því að sjá fyrirtækjum og
einstaklingum fyrir nýrri þekkingu og færni
eftir því sem þörf krefur. Áhersla er lögð á að
bregðast skjótt við þörfum iðnaðarins fyrir
nýja þekkingu en á undanförnum misserum
hafa orðið miklar breytingar í starfsumhverfi
iðnaðarins. Þær breytingar hafa kallað eftir
aukinni þverfaglegri þjónustu IÐUNNAR og
breiðara þjónustuframboði. Nýrri stefnu
IÐUNNAR er ætlað að svara þessu ákalli.
Hjá IÐUNNI starfa 25 manna samhent
liðsheild. Við bjóðum upp á fyrirmyndar
starfsaðstöðu, lærdómsríkt og uppbyggjandi
starfsumhverfi þar sem áhersla er meðal
annars lögð á jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
www.idan.is
Við hvetjum áhugasama til að sækja um,
óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Deildarstjóri Þróun þekkingar og framleiðsla
Við leitum að kraftmiklum stjórnanda sem mun, ásamt öflugum hópi starfsfólks, móta og leiða vinnu
við að stórauka þátt þróunar, nýsköpunar og framleiðslu hjá IÐUNNI. Starfið er nýtt og heyrir undir
framkvæmdastjóra.
Um þig:
• Þú hefur brennandi áhuga á þróun, nýsköpun og framleiðslu.
• Ert sókndjörf og drífandi manneskja.
• Þú hefur menntun og stjórnunarreynslu sem nýtist í starfinu.
• Átt auðvelt með að fá fólk til liðs við þig og draga fram það besta.
• Hefur reynslu af þróun og framleiðslu.
Ábyrgðarsvið:
• Ber ábyrgð á árangri deildarinnar.
• Móta framboð náms og þjónustu í takt við breytilegar þarfir iðnaðarins.
• Framleiðsla náms, efni og námsleiða, og annarrar þjónustu.
• Þróun stafrænna fræðslulausna.
• Tryggja að búnaður styðji fjölbreytta miðlun efnis til ólíka hópa.
• Þátttaka í erlendu samstarfi.
Leiðtogi Matvæla- og veitingagreina
Við leitum að framsæknum leiðtoga til að leiða fræðslu og þjónustu IÐUNNAR gagnvart matvæla- og
veitingagreinum. Í þeim tilgangi þróar leiðtoginn faglega sérhæfingu IÐUNNAR í viðkomandi greinum
og skapar sterk tengsl við fagmenn/faggreinarnar.
Um þig:
• Þú hefur brennandi áhuga á fræðslu matvæla- og veitingagreina.
• Tekur auðveldlega frumkvæði og átt gott með að leiða samstarf á farsælan hátt.
• Hefur reynslu af samstarfi í atvinnulífinu.
• Ert árangursdrifinn einstaklingur og með framúrskarandi samskiptafærni.
• Þú hefur menntun sem nýtist í starfi, á sviði matvæla- og veitingagreina.
Ábyrgðarsvið:
• Skipulagning á fræðslustarfi fyrir matvæla- og veitingagreina.
• Þróa leiðir til fyrirtækjafræðslu fyrir matvæla- og veitingagreinar.
• Samstarf við lykilfólk í greinunum og uppbygging tengslanets.
• Fyrirtækjaheimsóknir og eftirfylgni verkefna.
• Þátttaka í umsögnum um fagtengd mál.
• Undirbúningur og eftirfylgni Fagráðsfunda.
Leiðtogi Málm- og véltæknigreina
Við leitum að framsæknum leiðtoga til að leiða fræðslu og þjónustu IÐUNNAR gagnvart málm- og
véltæknigreinum. Í þeim tilgangi þróar leiðtoginn sterka faglega sérhæfingu IÐUNNAR í viðkomandi
greinum og skapar sterk tengsl við fagmenn/faggreinarnar.
Um þig:
• Þú hefur brennandi áhuga á fræðslu málm- og véltæknigreina.
• Tekur auðveldlega frumkvæði og átt gott með að leiða samstarf á farsælan hátt.
• Hefur reynslu af samstarfi í atvinnulífinu.
• Ert árangursdrifinn einstaklingur og með framúrskarandi samskiptafærni.
• Þú hefur menntun sem nýtist í starfi, á sviði málm- og véltæknigreina auk framhaldsmenntunar.
Ábyrgðarsvið:
• Skipulagning á fræðslustarfi fyrir málm- og véltæknigreinar.
• Þróa leiðir til fyrirtækjafræðslu fyrir málm- og véltæknigreinar.
• Samstarf við lykilfólk í greinunum og uppbygging tengslanets.
• Fyrirtækjaheimsóknir og eftirfylgni verkefna.
• Þátttaka í umsögnum um fagtengd mál.
• Undirbúningur og eftirfylgni Fagráðsfunda.
Nánari upplýsingar um störfin og
hæfniskröfur má finna á www.vinnvinn.is.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára