Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 20
Hlutlaust
fólk heldur
með Vík-
ingum
vegna
Arnars.
Harðhaus-
inn frá El
Salvador
sem sér
til þess að
allir leggi
sig fram.
n Lykilmaðurinn
n Vörn
n Miðja
n Fylgstu með ▲ Komnir/farnir ▼
n Sókn
n Þjálfari
Víkingur hafnar í 2. sæti
n Spá Fréttablaðsins
1. sæti ?
2. sæti Víkingur
3. sæti FH
4. sæti Breiðablik
5. sæti KR
6.sæti Stjarnan
7. sæti ÍA
8. sæti Leiknir R
9. sæti KA
10. sæti ÍBV
11. sæti Keflavík
12. sæti Fram
Eftir að hafa unnið tvo titla á
síðustu leiktíð eru væntingarnar
í Fossvogi gríðarlegar. Hafa litið
frábærlega út í vetur og ættu
að berjast um báða titla ef allt
fer vel. Gríðarleg stemning er í
kringum félagið, sem vafalítið
hjálpar til. Kraftaverkið gætið
endurtekið sig hjá Arnari Gunn-
laugssyni.
Pablo Punyed
Harðhausinn á miðsvæði Víkings,
Pablo Punyed, var magnaður á
síðasta tímabili. KR ákvað að leyfa
Pablo að fara haustið 2020 og sér
eflaust enn eftir þeirri ákvörðun
í dag. Ásamt því að vera harður í
horn að taka er Pablo afar öflugur
fram völlinn, getur farið af stað
með boltann en hefur einnig gott
auga fyrir sendingum.
Hann er svo frábær fyrirmynd
fyrir unga leikmenn í kringum sig
sem komast ekkert upp með það
að elta ekki hvern einasta bolta
eða fórna sér ekki í tæklingar.
Pablo leiðir miðsvæði Víkings
áfram með góðu fordæmi.
Ábyrgðin á Pablo verður svo enn
meiri í ár þegar reynsluboltarnir
Kári Árnason og Sölvi Ottesen eru
horfnir á braut, Pablo þarf því að
vera enn meiri leiðtogi en áður.
Gengi síðustu sex tímabil
2009 7. sæti | 2016 7 sæti | 2017 8 sæti | 2018 9 sæti | 2019 7 sæti | 2020 10 sæti | 2021 1 sæti
n Íslandsmeistarar 1920, 1924, 1981, 1982, 1991, 2021 n Bikarmeistarar 1971, 2019, 2021
▲ Birnir Snær Ingason
▲ Oliver Ekroth
▲ Kyle McLagana
▲ Arnór Borg Guðjohnsen
▲ Davíð Örn Atlason
▲ Karl Friðleifur Gunnarsson
▲ Ari Sigurpálsson
▼ Kári Árnason
▼ Sölvi Geir Ottesen
▼ Kwame Quee
▼ Halldór Jón Sigurður Þórðarson
▼ Atli Barkarson
Maðurinn sem allt knatt-
spyrnuáhugafólk elskar, Arnar
Gunnlaugsson, er áfram bíl-
stjóri á Vikings-hraðlestinni.
Arnar hefur unnið hug og hjörtu
Víkinga með skemmtilegum og
árangursríkum fótbolta.
Arnar er heiðarlegur þegar
hann ræðir við fjölmiðla og fer
aldrei í felur með það sem fer í
gegnum haus hans. Sama hvort
Víkingum vegni vel eða illa mun
Arnar koma til dyranna eins og
hann er klæddur.
Hefur sterka skoðun á því
hvernig fótboltalið hans á að
spila, en hans helsti styrkleiki
er að ná vel til leikmanna.
Birnir Snær Ingason fær aftur
tækifæri í toppliði en árið 2019
gekk hann í raðir Vals. Dvöl hans á
Hlíðarenda var ein sorgarsaga og
fór Birnir til HK eftir stutt stopp
hjá Val.
Hjá HK átti Birnir flotta spretti
og sannaði að hellingur af hæfi-
leikum er í löppum hans, hann
skortir hins vegar stöðugleika til
að nýtast bestu liðunum.
Arnar Gunnlaugsson fær það
verkefni að kreista alla hæfileika
Birnis fram, en hann þarf einnig
að koma kantmanninum knáa í
skilning um að það ekki er pláss
fyrir farþega í varnarleik í nútíma
fótbolta. Birnir hefur það orð á sér
að vera latur að skila sér til baka
en hann mun ekki komast upp
með það hjá Arnari.
Takist Birni að bæta leik sinn
gæti hann orðið algjör X-factor í
sterku liði Víkings.
Ingvar Jónsson mun standa
vaktina í marki Víkings, en að
auki er liðið með Þórð Ingason.
Þórður byrjaði síðasta tímabil
með látum en Ingvar tók svo
við keflinu. Ingvar af ein af
stóru hetjum Víkings á síðustu
leiktíð.
Stóra spurningarmerkið er
svo í hjarta varnarinnar, en Kári
Árnason og Sölvi Geir Ottesen
lögðu skóna a hilluna eftir
síðustu leiktíð. Þeirra verður
saknað.
Arnar Gunnlaugsson hefur
í vetur sótt þá Kyle McLagana
og Oliver Ekroth, en fyrir er svo
Halldór Smári Sigurðsson. Arnar
gæti brugðið á það ráð að leika
með þrjá miðverði.
Í bakvarðastöðunum hefur
Víkingur bætt við sig Davið Erni
Atlasyni sem mættur er heim í
Vikina eftir fýluferð í Kópavog.
Karl Friðleifur sem var á láni á
síðustu leiktíð var svo keyptur
frá Breiðabliki. Í vetur hefur svo
Logi Tómasson blómstrað og
gæti spilað stóra rullu.
Pablo Punyed og Júlíus Magnús-
son eru lykilmenn á miðju
Víkings. Þeir eru í því hlutverki
að verja vörnina en þurfa einnig
að vera öflugir í koma boltanum
fram völlinn.
Fyrir framan þá er svo lista-
maðurinn Kristall Máni Ingason
sem var magnaður undir lok
síðustu leiktíðar. Kristall gæti
orðið ein af stjörnum Bestu
deildarinnar í sumar. Sér völlinn
vel og er fljótur að koma sér
fram völlinn, mjög klókur.
Víkingar hafa svo nokkra
spilara sem geta komið inn í
stöðurnar á miðsvæðinu en
breiddin gæti verið meiri.
Nikolaj Hansen var bæði
markahæsti og besti leikmaður
Bestu deildarinnar á síðustu
leiktíð. Framherjinn frá Dan-
mörku fann markaskóna sem
enginn vissi að væru til. Nikolaj
raðaði inn mörkum í öllum
regnbogans litum og þarf að
halda uppteknum hætti.
Viktor Örlygur Andrason og
Erlingur Agnarson vinna svo í
kringum danska framherjann
en báðir áttu flotta spretti í
fyrra.
Víkingar búa svo yfir mikilli
breidd í stöðurnar fremst á
vellinum, en í vetur hefur félag-
ið bætt við Birni Snæ Ingasyni,
Ara Sigurpálssyni og Arnóri
Guðjohnsen. Fyrir eru svo Helgi
Guðjónsson og Adam Ægir
Pálsson sem geta ógnað með
hraða. Breiddin er því gríðarleg.
Til að allt smelli hjá Víkingum
þarf Hansen að finna sömu
markaskó og á síðustu leiktíð
þar sem hann skoraði 16 mörk
þegar Víkingur varð Íslands-
meistari.
Í upphafi vetrar fór maður að van-
meta Víkinga, þrátt fyrir að liðið
hefði unnið báða titlana síðasta
sumar. Svo fór maður að fylgjast
náið með leikjum liðsins og þeir
fóru strax aftur á blað hjá mér yfir
þau lið sem eiga að berjast um titil-
inn. Það hefur verið hrikalega gott
flæði í spilamennsku.
Það hefur auðvitað mikið verið
talað um að þeir muni sakna Kára
og Sölva sem hættu eftir síðustu
leiktíð. Nærvera þeirra er hins vegar
enn til staðar, Kára sem yfirmanns
knattspyrnumála og svo er Sölvi
Geir í þjálfarateyminu. Þeir eru því
á staðnum til að halda mönnum á
tánum.
Stóra spurningin er hvort Niko-
laj Hansen geti töfrað fram öll þessi
mörk líkt og á síðustu leiktíð, danski
framherjinn hafði ekki verið þekkt-
ur fyrir markaskorun þegar hann
skoraði svo 16 mörk í fyrra. Ég vil
líka fá fleiri mörk frá Kristali Mána.
Hann endaði tímabilið rosalega vel
í fyrra en ég vil fá fleiri mörk yfir allt
tímabilið frá þessum öf luga leik-
manni. Erlingur Agnarsson hefur
svo heillað mig í vetur, hann gæti
orðið algjör lykilmaður í þessu liði.
Stóra spurningin í vörninni er
fyrir mér hver verður við hlið Hall-
dórs Smára, Oliver Ekroth og Kyle
McLagana munu berjast um það.
Samvinna Halldórs og Kyle í vetur
Nærvera Kára og Sölva utan vallar dregur úr högginu
n Albert segir
Albert Brynjar
Ingason
hefur verið góð. Karl Friðleifur hefur
verið mjög góður vinstra megin og
Logi Tómasson hefur komið virki-
lega á óvart í vinstri bakverðinum.
Logi virðist ætla að stíga upp núna
í ár og er að taka þetta meira alvar-
lega. Þeir hafa svo Davíð Atlason
sem getur leyst allar stöður í vörn-
inni.
Arnar Gunnlaugsson er með
breidd fram á við, Birnir Snær hefur
litið vel út í vetur en óvíst er hversu
mikið Arnór Borg Guðjohnsen nýt-
ist liðinu. Arnar er með möguleika
á að spila með þriggja manna vörn
eða fara í 4-4-2.
Arnar er svo auðvitað maðurinn
sem þetta snýst allt um, hann er
með fólkið í Víkinni með sér. Það er
gaman að hlusta á viðtöl við hann
og hlutlaust fólk fór í fyrra að styðja
Víking út af honum. Leikmönnum
líður vel undir hans stjórn og þeir
vita að það er ekkert bull í gangi. n
Arnar Gunn-
laugsson er
elskaður og
dáður í Víkinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
20 Íþróttir 9. apríl 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 9. apríl 2022 LAUGARDAGUR