Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 30
Ég elska að safna
einhverju, fjölskyldan
er mjög ánægð með
það því þá er ekki eins
erfitt að gefa mér jóla-
og afmælisgjafir.
Ég vinn
töluvert
heima og
elska
heimilið
mitt, hér
líður mér
vel.
Katrín Halldóra Sigurðar-
dóttir, söng- og leikkona,
býr ásamt fjölskyldu sinni í
Sundahverfi þar sem þau una
hag sínum vel á fallegu heimili
þar sem fegurð og þægindi
fara vel saman.
Katrín Halldóra Sigurðar-
dóttir, söng- og leik-
kona, stendur í ströngu
þessa dagana en fram
undan eru stórtón-
leikar í Eldborg á sunnudaginn þar
sem hún mun syngja lög Jóns Múla
Árnasonar við texta bróður hans
Jónasar Árnasonar af plötu sem hún
gaf út í fyrra. Svo er hún líka nýbúin
að frumsýna nýtt verk ásamt sam-
starfsfélögum sínum í Þjóðleikhús-
inu, verkið Ást og upplýsingar eftir
breska leikskáldið Caryl Churchill
sem hlotið hefur mikið lof.
Katrín er mikil fjölskyldukona og
elskar að fá fjölskyldu og vini í heim-
sókn og elda góðan mat. Hún er gift
Hallgrími Jóni Hallgrímssyni sem
á Óðin og saman eiga þau tæplega
tveggja ára gaur, Stíg, og hundinn
Edith sem er enskur fjárhundur.
„Ég vinn töluvert mikið heima og
elska heimilið mitt, hér líður mér
vel. Hér reyni ég líka að æfa mig
fyrir verkin sem eru í gangi hjá mér
hverju sinni.“
Nú eru það tónleikarnir fram
undan sem eiga hug hennar allan.
„Páll Óskar er gestasöngvari og ég
hlakka mjög mikið til að telja í þessi
fallegu lög með þessari stórkostlegu
hljómsveit sem verður með mér á
sviðinu.“
Fjölskyldan býr í Sundahverfi og
unir hag sínum vel. „Við kunnum
mjög vel við okkur í þessu hverfi, við
höfum verið hér í þó nokkur ár og
þar sem við erum með hund hentar
mjög vel að hér eru góðar gönguleið-
ir, stutt að fara í Laugardalinn sem er
svo fallegur allan ársins hring. Einn-
ig erum við mjög miðsvæðis og það
er stutt í allar áttir.“
Mikill safnari
„Ég myndi ekki segja að ég væri með
neinn ákveðinn stíl, heldur meira
svona safna ég að mér húsgögnum
sem eru bæði falleg og þægileg. Það
er praktískt að vera með sófa sem
auðvelt er að þrífa þegar maður er
með ungbarn. Svo elska ég fallega
lýsingu og er með algjört ljósa- og
lampablæti. Mér finnst það vera
hlutirnir sem fólk hefur safnað
að sér og þykir vænt um sem gera
heimili að heimili. Maður getur oft
séð húmor og áhuga fólks í gegnum
heimili þess. Það er gaman þegar
hver og einn getur leyft sínum per-
sónuleika að njóta sín á heimilinu.“
Katrín er líka mikill safnari.
„Ég elska að safna einhverju, fjöl-
skyldan er mjög ánægð með það
því þá er ekki eins erfitt að gefa mér
jóla- og afmælisgjafir. Ég er núna
til að mynda að safna í uppáhalds
stellið mitt, Royal Copenhagen. Mér
finnst svo gaman að leggja fallega á
borð og er mikið fyrir fallegan borð-
Heimili þar sem listin og gleðin eru í fyrirrúmi
Katrín er mikil
fjölskyldukona
og nýtur þess
að vera í faðmi
fjölskyldunnar.
Hundurinn
Edith á sinn sess
á heimilinu og
fær líka að vera
í sófanum að
kúra.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
30 Helgin 9. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ