Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 54
Tónlistarskóli Eyjafjarðar
auglýsir eftir tónlistarkennurum
í eftirfarandi stöður:
Tónlistar-/tónmenntakennari í 75-100% starfshlutfall.
Tónlistarskóli Eyjafjarðar leitar að tónlistar-/tónmennta-
kennara til að kenna og móta fjölbreytta tónlistarkennslu
við skólann. Sinna þarf fjölþættri kennslu, m.a. forskóla-/
tónmenntakennslu í samvinnu við leik- og grunnskóla
á starfssvæðinu sem er Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit,
Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur.
Fyrir hæfan og metnaðarfullan aðila eru möguleikar á að
þróa og móta starfið en unnið hefur verið með ýmsa þætti
eins og marimbukennslu, kórstarf, samsöng, rythmískt sam-
spil o.fl. Hljóðfærakennsla getur verið hluti af starfinu
ef umsækjandi óskar.
Tónlistarkennari/Gítarkennari í 50-100% starfshlutfall.
Leitað er eftir kennara með breiðan bakgrunn sem gæti
kennt fjölbreytta hljóðfærakennslu byrjenda með áherslu
á klassíska gítarkennslu.
Yfirmenn eru skólastjóri og aðstoðarskólastjóri tónlistar-
skólans en í nánum samskiptum við aðra stjórnendur leik-
og grunnskóla.
Umsækjandi hafi menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum tónlistarkennara
við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Umsækjandi þarf að hafa bíl til umráða, akstur greiddur
samkvæmt samningi. Góð samskiptahæfni er lykilatriði.
Höfuðstöðvar skólans eru á Hrafnagili innan við 10 mínútna
akstur frá Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 8.maí 2022.
Upplýsingar um starfið veitir Guðlaugur Viktorsson,
skólastjóri s.8980525. Fyrirspurnir og umsóknir berist
á netfangið te@krummi.is
Skólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Fagefni ehf. óskar eftir að ráða drífandi fjármálastjóra
til starfa. Um er að ræða starf fyrir einstakling sem hefur
áhuga á að taka þátt í þeim fjölbreyttu verkefnum sem
snerta rekstur fyrirtækisins, hvort sem þau snúa að
fjármálum, innkaupum eða símsvörun. Leitað er að eins-
taklingi sem hefur frumkvæði og metnað til að ná árangri í
ört stækkandi fyrirtæki þar sem tækifærin eru endalaus og
starfsandinn góður.
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ:
• Ábyrgð á daglegri fjármálastjórn, uppgjöri, reiknings-
haldi og launaútreikningi.
• Ábyrgð á gerð greininga ásamt gerð fjárhags- og
rekstraráætlana og ráðgjafar við yfirstjórn.
• Innkaup og samningagerð.
• Þar sem að yfirstjórn er lítil þarf aðili að koma að
margvíslegum málum í rekstri fyrirtækisins t.d. önnur
tilfallandi verkefni sem getur verið símsvörun og
móttaka viðskiptavina.
MENNTUNAR OG HÆFNISKRÖFUR:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af bókhaldi, áætlanagerð og uppgjörum skilyrði.
• Góð greiningarhæfni, framsetning og miðlun fjárhags-
upplýsinga.
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar, frumkvæði og
sjálfstæð vinnubrögð.
• Drifkraftur, hugmyndaauðgi og lausnamiðuð hugsun.
• Mjög góð tölvukunnátta og þekking á dk bókhaldskerfi.
• Færni í íslensku og ensku í ræðu og riti.
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á
alda@fagefni.is fyrir 20/04/2022
Fjármálastjóri
Fagefni ehf er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem
flytur inn, þjónustar og selur hágæða múrefni,
þéttiefni og vínylgólfefni frá heims þekktum
framleiðendum.
Okkar markmið er alltaf að veita framúrskarandi
þjónustu og og safna ánægðum viðskiptavinum.
SÉRKENNSLUFULLTRÚI
GARÐABÆJAR
gardabaer.is
Garðabær óskar eftir að ráða sérkennslufulltrúa við fræðslu- og menningarsvið. Um er að ræða
100% starfshlutfall.
Helstu verkefni:
• Veita faglega forystu, ráðgjöf og stuðning varðandi börn með sérþarfir í skólum
• Sitja í og stýra teymum og verkefnum sem snúa að sérkennslu leikskólabarna
• Skipuleggja og fylgja eftir úthlutun til sérkennslu og stuðnings til leikskóla
• Veita kennurum, stjórnendum og foreldrum leikskólabarna og barna á yngsta stigi grunn-
skóla eftir því sem við á ráðgjöf á sviði sérkennslu og stuðnings varðandi börn með sérþarfir
• Vera ráðgefandi starfsfólki leikskóla og á yngsta stigi grunnskóla eftir því sem við á um kennslu-
fræðilegar útfærslur og einstaklingsnámskrár vegna barna sem þurfa sérstakan stuðning
• Að tryggja samfellu í þjónustu nemenda með sérþarfir á milli skólastiga
• Að taka þátt í að þróa starfið í samráði við þverfaglegt teymi fræðslusviðs um samþættingu
þjónustu í þágu farsældar barna og PMTO
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
• Leikskólakennaramenntun
• Framhaldsnám í sérkennslufræðum
• Starfsreynsla í leikskóla, þ.m.t. reynsla af vinnu með börnum með sérþarfir
• Þekking á yngstu stigum grunnskóla
• Reynsla af vinnu í þverfaglegu teymi
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
• Samstarfs- og samskiptafærni
• Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
• Lausnamiðað viðhorf, heiðarleiki og jákvæðni
Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2022. Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Björn
Björgvinsson forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, netfang eirikurbjorn@gardabaer.is
eða í síma 5258500. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
og Félags stjórnenda í leikskólum.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsækjendur eru beðnir
um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsókn um starfið þarf að fylgja greinargóð starfsferilsskrá þar sem gert er grein fyrir kennslu-
reynslu og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, menntun og hæfni til að
sinna starfinu ásamt afritum af prófskírteinum.
Múlaþing
Sími 4 700 700
mulathing@mulathing.is
mulathing.is
Skipulagsfulltrúi Múlaþings
Múlaþing
Sími 4 700 700
mulathing@mulathing.is
mulathing.is
Múlaþing auglýsir eftir skipulagsfulltrúa á umhverfis-og framkvæmdasvið.
Umsækjandi skal uppfylla menntunar- og hæfniskröfur samkvæmt 7. grein
skipulagslaga nr. 123/2010 og 2.5. kafla skipulagsreglugerðar nr. 90/2013
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Sótt er um starfið á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir
„störf í boði“ eða á starfasíðu Múlaþings www.mulathing.alfred.is.
Umsóknarfrestur er til 19. apríl 2022
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is
Þarftu
að ráða starfsmann?
Ráðum sérhæfir sig í ráðgjöf og ráðningum.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum
lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.