Fréttablaðið - 09.04.2022, Page 54

Fréttablaðið - 09.04.2022, Page 54
Tónlistarskóli Eyjafjarðar auglýsir eftir tónlistarkennurum í eftirfarandi stöður: Tónlistar-/tónmenntakennari í 75-100% starfshlutfall. Tónlistarskóli Eyjafjarðar leitar að tónlistar-/tónmennta- kennara til að kenna og móta fjölbreytta tónlistarkennslu við skólann. Sinna þarf fjölþættri kennslu, m.a. forskóla-/ tónmenntakennslu í samvinnu við leik- og grunnskóla á starfssvæðinu sem er Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit, Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Fyrir hæfan og metnaðarfullan aðila eru möguleikar á að þróa og móta starfið en unnið hefur verið með ýmsa þætti eins og marimbukennslu, kórstarf, samsöng, rythmískt sam- spil o.fl. Hljóðfærakennsla getur verið hluti af starfinu ef umsækjandi óskar. Tónlistarkennari/Gítarkennari í 50-100% starfshlutfall. Leitað er eftir kennara með breiðan bakgrunn sem gæti kennt fjölbreytta hljóðfærakennslu byrjenda með áherslu á klassíska gítarkennslu. Yfirmenn eru skólastjóri og aðstoðarskólastjóri tónlistar- skólans en í nánum samskiptum við aðra stjórnendur leik- og grunnskóla. Umsækjandi hafi menntun og reynslu sem nýtist í starfi. Laun eru samkvæmt kjarasamningum tónlistarkennara við Samband íslenskra sveitarfélaga. Umsækjandi þarf að hafa bíl til umráða, akstur greiddur samkvæmt samningi. Góð samskiptahæfni er lykilatriði. Höfuðstöðvar skólans eru á Hrafnagili innan við 10 mínútna akstur frá Akureyri. Umsóknarfrestur er til 8.maí 2022. Upplýsingar um starfið veitir Guðlaugur Viktorsson, skólastjóri s.8980525. Fyrirspurnir og umsóknir berist á netfangið te@krummi.is Skólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Fagefni ehf. óskar eftir að ráða drífandi fjármálastjóra til starfa. Um er að ræða starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að taka þátt í þeim fjölbreyttu verkefnum sem snerta rekstur fyrirtækisins, hvort sem þau snúa að fjármálum, innkaupum eða símsvörun. Leitað er að eins- taklingi sem hefur frumkvæði og metnað til að ná árangri í ört stækkandi fyrirtæki þar sem tækifærin eru endalaus og starfsandinn góður. HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ: • Ábyrgð á daglegri fjármálastjórn, uppgjöri, reiknings- haldi og launaútreikningi. • Ábyrgð á gerð greininga ásamt gerð fjárhags- og rekstraráætlana og ráðgjafar við yfirstjórn. • Innkaup og samningagerð. • Þar sem að yfirstjórn er lítil þarf aðili að koma að margvíslegum málum í rekstri fyrirtækisins t.d. önnur tilfallandi verkefni sem getur verið símsvörun og móttaka viðskiptavina. MENNTUNAR OG HÆFNISKRÖFUR: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Reynsla af bókhaldi, áætlanagerð og uppgjörum skilyrði. • Góð greiningarhæfni, framsetning og miðlun fjárhags- upplýsinga. • Framúrskarandi samskiptahæfileikar, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. • Drifkraftur, hugmyndaauðgi og lausnamiðuð hugsun. • Mjög góð tölvukunnátta og þekking á dk bókhaldskerfi. • Færni í íslensku og ensku í ræðu og riti. Umsóknir og fyrirspurnir sendist á alda@fagefni.is fyrir 20/04/2022 Fjármálastjóri Fagefni ehf er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem flytur inn, þjónustar og selur hágæða múrefni, þéttiefni og vínylgólfefni frá heims þekktum framleiðendum. Okkar markmið er alltaf að veita framúrskarandi þjónustu og og safna ánægðum viðskiptavinum. SÉRKENNSLUFULLTRÚI GARÐABÆJAR gardabaer.is Garðabær óskar eftir að ráða sérkennslufulltrúa við fræðslu- og menningarsvið. Um er að ræða 100% starfshlutfall. Helstu verkefni: • Veita faglega forystu, ráðgjöf og stuðning varðandi börn með sérþarfir í skólum • Sitja í og stýra teymum og verkefnum sem snúa að sérkennslu leikskólabarna • Skipuleggja og fylgja eftir úthlutun til sérkennslu og stuðnings til leikskóla • Veita kennurum, stjórnendum og foreldrum leikskólabarna og barna á yngsta stigi grunn- skóla eftir því sem við á ráðgjöf á sviði sérkennslu og stuðnings varðandi börn með sérþarfir • Vera ráðgefandi starfsfólki leikskóla og á yngsta stigi grunnskóla eftir því sem við á um kennslu- fræðilegar útfærslur og einstaklingsnámskrár vegna barna sem þurfa sérstakan stuðning • Að tryggja samfellu í þjónustu nemenda með sérþarfir á milli skólastiga • Að taka þátt í að þróa starfið í samráði við þverfaglegt teymi fræðslusviðs um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og PMTO Menntunar- og hæfnikröfur: • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn) • Leikskólakennaramenntun • Framhaldsnám í sérkennslufræðum • Starfsreynsla í leikskóla, þ.m.t. reynsla af vinnu með börnum með sérþarfir • Þekking á yngstu stigum grunnskóla • Reynsla af vinnu í þverfaglegu teymi • Góð almenn tölvukunnátta • Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti • Samstarfs- og samskiptafærni • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar • Lausnamiðað viðhorf, heiðarleiki og jákvæðni Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2022.  Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Björn Björgvinsson forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, netfang eirikurbjorn@gardabaer.is  eða í síma 5258500. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags stjórnenda í leikskólum. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.  Umsókn um starfið þarf að fylgja greinargóð starfsferilsskrá þar sem gert er grein fyrir kennslu- reynslu og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, menntun og hæfni til að sinna starfinu ásamt afritum af prófskírteinum. Múlaþing Sími 4 700 700 mulathing@mulathing.is mulathing.is Skipulagsfulltrúi Múlaþings Múlaþing Sími 4 700 700 mulathing@mulathing.is mulathing.is Múlaþing auglýsir eftir skipulagsfulltrúa á umhverfis-og framkvæmdasvið. Umsækjandi skal uppfylla menntunar- og hæfniskröfur samkvæmt 7. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og 2.5. kafla skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna. Sótt er um starfið á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir „störf í boði“ eða á starfasíðu Múlaþings www.mulathing.alfred.is. Umsóknarfrestur er til 19. apríl 2022 RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is Þarftu að ráða starfsmann? Ráðum sérhæfir sig í ráðgjöf og ráðningum. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.