Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 40
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656.
Lucinity er þriggja ára nýsköp-
unarfyrirtæki í örum vexti sem
hefur hannað hugbúnað fyrir
banka og fjártæknifyrirtæki til að
hjálpa þeim í baráttu sinni gegn
peningaþvætti. Öflug gervigreind
og af burðagott notendaviðmót
eru þannig sameinuð í greiningar-
tóli sem valdeflir starfsfólk fjár-
málafyrirtækja um allan heim og
gerir því kleift að takast á við pen-
ingaþvætti með skilvirkari hætti
en áður hefur verið mögulegt.
Um afar mikilvægan málaflokk
er að ræða, en peningaþvætti er
aðalforsenda þess að skipulögð
af brotastarfsemi þrífist innan
samfélags og yfir landamæri, svo
sem mansal, vændi, eiturlyfjasala
og ólögleg vopnasala.
Mikil eftirspurn eftir starfsfólki
„Við finnum að það er mikil
eftirspurn eftir starfsfólki í upp-
lýsingatækni og íslenskt atvinnu-
líf þarf sárlega á því að halda að
fjölga fólki í geiranum. Helmingur
vinnuafls á Íslandi er konur en
hlutfall þeirra í upplýsingatækni
er allt of lágt. Með því að stuðla að
auknum sýnileika kvenna í upp-
lýsingatækni vonum við að f leiri
sýni þessum spennandi vettvangi
áhuga. Verkefnin fram undan
eru bæði mikilvæg, krefjandi og
skemmtileg,“ segir Ásdís Eir Sím-
onardóttir, VP of People & Culture
hjá Lucinity.
Samtök kvenna
Vertonet eru samtök kvenna sem
starfa, eða hafa áhuga á að starfa,
í upplýsingatækni á Íslandi. Sam-
tökin voru stofnuð á vordögum
2018 og eiga sér norska fyrirmynd
en hugmyndin tekur mið af Oda-
Nettverk sem eru norsk kvenna-
samtök fyrir konur í upplýsinga-
tækni. Hugmyndafræðin á bak
við Vertonet er að konur og fyrir-
tæki innan upplýsingatækninnar
vinni saman í því að efla þátttöku
kvenna í geiranum og skapa þann-
ig aukinn fjölbreytileika. „Í byrjun
vorum við ekki nema nokkrir
tugir kvenna í félaginu en það
hefur heldur betur breyst því í dag
erum við hátt í 700 konur og sífellt
bætist í hópinn,“ segir Linda B.
Stefánsdóttir, formaður Vertonet.
Starfið snýst um að halda reglu-
bundna viðburði með áhuga-
verðum erindum frá konum sem
starfa innan upplýsingatækni.
Markmiðið með þessum við-
burðum er að auka sýnileika allra
þeirra f lottu kvenna sem starfa í
geiranum, samhliða því að styrkja
tengsl milli kvenna. „Við endum
alla okkar viðburði á „teygjum á
tengslanetinu“-leiknum þar sem
hver kona þarf að kynna sig og
spjalla við að að minnsta kosti
þrjár konur sem hún hefur ekki
áður hitt,“ segir Linda.
Hvatningardagur Vertonet
„Hátindurinn í viðburða-
haldi félagsins er Hvatningar-
dagur Vertonet. Dagskráin byrjar
á hádegi og endar með kokteil
seinnipartinn. Á þessum degi
koma konur saman, hlusta á
fræðandi og skemmtileg erindi
kvenna sem eru að gera áhuga-
verða hluti eða hafa skarað fram
úr á einhvern hátt. Við þetta
tækifæri veitum við jafnframt
Hvatningarverðlaun Vertonet og
heiðrum þannig konur sem hafa
lagt sitt af mörkum í að gera upp-
lýsingatæknigeirann eftirsóknar-
verðan fyrir konur og hvetjum
þannig aðrar konur til að gera sig
sýnilegri,“ bætir Linda við.
Hátt menntunarstig
„Við teljum mikilvægt að fylgjast
með hvernig fyrirtækjum í upp-
lýsingatækni miðar í því að efla
þátttöku kvenna í geiranum og
höfum í þeim tilgangi framkvæmt
tvær kannanir í samstarfi við
Intellecta um stöðu kvenna í upp-
lýsingatækni. Í síðari könnuninni,
sem framkvæmd var í fyrra,
kemur fram að 58,8% fyrirtækja
í upplýsingatækni sögðust vinna
markvisst í því að styrkja stöðu
kvenna innan geirans.
Einnig töldu f lestir þátttakenda
að vinnustaður þeirra væri mjög
eða frekar karllægur, en það er
örugglega stór þáttur í því hversu
hægt gengur að fá f leiri konur
í geirann og því eitthvað sem
fyrirtæki þurfa að skoða sérstak-
lega. Það lítur því miður út fyrir
að hlutfall kvenna í geiranum
hafi ekki breyst mikið á milli ára
en það mældist 24,9% í þessari
könnun sem er svipað hlutfall og í
könnun sem gerð var árið 2019.
Könnunin sýndi einnig að það
er hátt menntunarstig í geiranum
en 84,4% þátttakenda eru með
háskólamenntun og þar af eru
36,5% með framhaldsmenntun á
háskólastigi. Eitt af því sem könn-
unin sýnir enn fremur er hvaða
þætti konur telja eftirsóknarverða
við góða vinnustaði og þar kemur
fram að spennandi verkefni eru
það sem flestar konur líta til,
ásamt jafnvægis milli vinnu og
einkalífs og sveigjanleika í vinnu.
Þetta eru áhugaverðar niður-
stöður sem koma þarna fram sem
geta gert fyrirtækjum sem rýna
könnunina kleift að vera með enn
markvissari aðgerðir í þá átt að
efla þátttöku kvenna í geiranum.
Við stefnum að því að fram-
kvæma viðlíka könnun annað
hvert ár og allir okkar bakhjarlar
hafa aðgang að niðurstöðunum,“
segir Linda.
„Við hjá Lucinity erum afar
hrifin af gagnadrifinni ákvarð-
anatöku, og fannst því mikilvægt
að gerast bakhjarl Vertonet til
að hafa aðgang að könnuninni
og geta þannig nýtt niðurstöður
hennar til frekari aðgerða,“ segir
Ásdís Eir.
„Við erum ákaflega stolt að fá
Lucinity sem bakhjarl Vertonet
en samstarf sem þetta gerir okkur
kleift að efla starf okkar enn
frekar,“ segir Linda. ■
Vertonet eru samtök kvenna sem starfa eða hafa áhuga á að starfa í upplýsingatækni á Íslandi og Lucinity er þriggja
ára nýsköpunarfyrirtæki í örum vexti. Ásdís og Linda segja að mikil eftirspurn sé eftir fólki í upplýsingatæknigeirann.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Setið og spjallað í glæsilegum húsakynnum Lucinity í Borgartúni.
Við teljum mikil-
vægt að fylgjast
með hvernig fyrirtækj-
um í upplýsingatækni
miðar í því að efla þátt-
töku kvenna í geiranum
og höfum í þeim tilgangi
framkvæmt tvær kann-
anir í samstarfi við
Intellecta um stöðu
kvenna í upplýsinga-
tækni.
Linda B. Stefánsdóttir
Helmingur vinnu-
afls á Íslandi er
konur en hlutfall þeirra í
upplýsingatækni er allt
of lágt.
Ásdís Eir Símonardóttir
2 kynningarblað 9. apríl 2022 LAUGARDAGURKonur í upplýsingatæKni