Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 66
Skóla- og frístundasvið
Aðstoðarleikskólastjóri við leikskólinn Heiðarborg
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu aðstoðarleikskólastjóra í Heiðarborg.
Heiðarborg er fjögurra deilda leikskóli við Selásbraut í Árbæ í næsta nágrenni við falleg útivistarsvæði í Elliðaárdal, Víðidal og
við Rauðavatn.
Einkunnarorð skólans eru vinátta - gleði - virðing. Í uppeldisstarfinu er einkum horft til kenninga John Dewey og fjölgreindaken-
ningar Howard Gardner og áhersla lögð á að horfa á styrkleika barnanna og nýta þá í náminu. Heiðarborg er Grænfánaleikskóli,
útikennsla er á öllum deildum og markvisst er unnið að því að efla þekkingu og virðingu barnanna fyrir náttúrunni, m.a. með
ræktun matjurtagarðs. Leikskólinn tekur einnig þátt í vináttuverkefni Barnaheilla og er Heilsueflandi leikskóli.
Unnið er að innleiðingu menntastefnu Reykjavíkurborgar með áherslu á sköpun og börnin fá fræðslu um Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna. Þróunarverkefnið Stígur á milli stiga er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla í Seláshverfi og miðar að
því að auka samstarf og samvinnu milli skólastiga, elstu börnin í leikskólanum fara reglulega í heimsókn í grenndarsvæðið
Heimahaga til að vinna sameiginleg verkefni með yngstu nemendum grunnskólans. Gott samstarf er einnig við foreldra og
grenndarsamfélagið, s.s. hestamannafélagið Fák, íþróttafélagið Fylki og félagsmiðstöð eldri borgara í hverfinu.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf í
Heiðarborg.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og leyfisbréf til að nota starsheitið leikskólakennari.
Ráðið verður í stöðuna frá 1.júní 2022 eða samkvæmt samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 21.apríl 2022.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda
leikskóla.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Benný Hannesdóttir leikskólastjóri í síma 4116570 og 6907493
Netfang: johanna.benny.hannesdottir@rvkskolar.is
Meginhlutverk aðstoðarleikskólastjóra er að:
• Vinna með leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans
og skipulagningu kennslu- og uppeldisstarfsins.
• Vera staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans.
• Taka þátt í stefnumótun og áætlanagerð leikskólans.
• Sjá um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við
leikskólastjóra.
• Vera faglegur leiðtogi.
• Sinna öðrum verkefnum sem leikskólastjóri felur honum.
Menntunar og hæfniskröfur
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf sem leikskóla-
kennari.
• Reynsla af stjórnun er æskileg.
• Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða.
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf.
• Góð tölvukunnátta.
• Góð íslenskukunnátta.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Kauptúni
VERKSTJÓRI Á STANDSETNINGU
Toyota Kauptúni leitar að metnaðarfullum einstaklingi í framtíðarstarf verkstjóra á Standsetningu.
Viðkomandi þarf að búa yr ríkri þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
STARFSSVIÐ:
· Ábyrgð á daglegum rekstri
· Verkstjórn
· Verkskipulag og samskipti við aðrar deildir
· Þrif og standsetning bíla
· Mannaforráð
· Skráning nýrra bíla
HÆFNISKRÖFUR:
· Leiðtogahæfni
· Góð tölvukunnátta
· Skipulagshæfni, frumkvæði og vandvirkni
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Jákvæðni, vinnugleði og rík þjónustulund
Vinnutími: Mánudaga – föstudaga 08:00 – 17:00
Í húsnæði Toyota að Kauptúni 6 í Garðabæ er glæsileg starfsmannaaðstaða, fullkomið mötuneyti, þægilegt
vinnuumhver og frábærir vinnufélagar. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 25. apríl n.k..
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast í gegnum ráðningarvef félagsins á, www.toyotakauptuni.is
Nánari upplýsingar veitir Fanný Bjarnadóttir á netfanginu fanny@toyota.is
Toyota á Íslandi Kauptúni 6 570-5070
Við ráðum
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Stjórnendaleit
Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga
Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu
stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja.
Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga
Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára
löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar
á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið.
Almennar ráðningar á markaði
Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta
áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum
er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu
máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í
viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki
við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið.
Sveigjanleg nálgun
Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun
á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt
ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir
fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf
krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða
starfs tengdar æfingar.
Matstæki
Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta
hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt
sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við
banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem
er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum
mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að
greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður
en ráðning fer fram.
Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn
með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið
OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index)
skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og
staðfærð að íslenskum markaði.
Ráðgjöf við starfslok
Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir
höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að
starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við
ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um
atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs
ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði
varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl.
Ráðum býður upp á ráðgjöf
og ráðningar þjónustu sniðna
að þörfum viðskiptavinarins.