Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 50
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun
sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megináhersla er lögð á að starfsfólk búi yfir
þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Áhersla er á traust og
gagnsæi í samskiptum, jafnrétti, starfsánægju og heilbrigðan starfsanda. Gildi LRH
eru traust, fagmennska og öryggi. Við embættið er laus til umsóknar ein staða
aðstoðarsaksóknara á ákærusviði.
Við ráðningar hjá LRH er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón með rannsókn og saksókn í málum sem honum eru falin og gerð
rannsóknaráætlana í samræmi við fyrirmæli ríkissaksóknara.
• Samhæfir sín verkefni við stefnu og markmið ákærusviðs og fylgir eftir
áætlunum og ákvörðunum yfirstjórnar.
• Sérfræðileg greining viðfangsefna og samskipti við aðila og stofnanir í tengslum
við meðferð mála og úrlausn verkefna.
• Almennt fyrirsvar og bein samskipti við ráðuneyti, önnur embætti, stofnanir og
fjölmiðla um verkefni ákærusviðs að beiðni eða að höfðu samráði við sviðstjóra.
• Sækir samráðsfundi ákærusviðs, almenna fræðslufundi og námskeið í samráði
við sviðsstjóra og sækir fundi með sínum teymisstjóra.
• Önnur verkefni sem honum eru falin af sviðsstjóra eða teymisstjóra og falla að
starfinu eða samkomulag er um, s.s. á sviði gæðamála hjá LRH.
• Fylgir reglum og fyrirmælum um skyldur opinberra starfsmanna og starfar og
framkvæmir í samræmi við trúnaðaryfirlýsingu sem hann undirritar.
Hæfniskröfur
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
• Reynsla af málflutningi fyrir héraðsdómstólum og reynsla af meðferð sakamála
er nauðsynleg.
• Þekking á auðgunarbrotum og öðrum brotum er varða fjárréttindi,
þ.m.t. peningaþvætti, er nauðsynleg.
• Þekking á vátryggingarétti og reikningsskilum er kostur.
• Reynsla af að meta sönnunargildi munnlegs framburðar er kostur.
• Mjög góð samstarfsfærni, sveigjanleiki og jákvætt viðhorf er mikilvægt.
• Sjálfstæði í samskiptum og vinnu, frumkvæði og skipulagshæfni er mikilvæg
• Lausnamiðuð nálgun í starfi og metnaður til að ná árangri er mikilvæg
• Mjög góð hæfni til að miðla upplýsingum er mikilvæg
• Mjög gott vald á íslensku og ensku, talaðri og ritaðri
Óskað er eftir að umsókn fylgi greinargóð ferilskrá yfir menntun og fyrri störf,
staðfesting á námi og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu
umsóknarinnar og rökstyður hæfni sína í starfið.
Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur
fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir hann varð fullra 18
ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu
verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla up-
plýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og
Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.
Sækja skal um stöðuna með rafrænum hætti á vef starfatorgs, www.starfatorg.is.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði
frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.04.2022
Nánari upplýsingar veitir
Hulda Elsa Björgvinsdóttir - hulda.elsa@lrh.is - 444-1000
Eygló Huld Jónsdóttir - eyglo.huld@lrh.is - 444-1000
Aðstoðarsaksóknari á ákærusviði
Vegna aukinna verkefna viljum við bæta við okkur
öflugu starfsfólki í útibúin okkar á landsbyggðinni.
Við höfum áhuga á jákvæðum einstaklingum sem
hafa metnað, sýna frumkvæði og sjálfstæði í starfi
og eiga auðvelt með að vinna með öðrum.
Störfin fela í sér að sinna hönnunarverkefnum á
breiðu sviði innan mannvirkjagerðar, fjölbreyttri
alhliða ráðgjöf ásamt eftirliti með
verkframkvæmdum.
Akranes – byggingar
Borgarnes – byggingar
Ísafjörður – byggingar
Blönduós – byggingar
Akureyri – byggingar, veitur,
vega- og gatnagerð
Húsavík – byggingar
Egilsstaðir – byggingar
Reyðarfjörður – byggingar
Selfoss – byggingar, veitur
Reykjanesbær – byggingar
Tæknistörf á
landsbyggðinni
Nánari upplýsingar veita
Elín Greta Stefánsdóttir mannauðsstjóri, egs@verkis.is
Ari Guðmundsson sviðsstjóri Starfsstöðvasviðs, arg@verkis.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2022. Sótt er um á www.verkis.is
Menntunar- og hæfniskröfur
• Verkfræðingur / tæknifræðingur / byggingarfræðingur
• Reynsla af hönnun og ráðgjöf
• Kunnátta í teikniforritum t.d. AutoCad, Revit eða Civil 3D
VIÐ BYGGJUM UPP SAMFÉLÖG
Verkís er öflugt og framsækið ráðgjafarfyrirtæki
sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum
verkfræði. Yfir 330 manns starfa hjá fyrirtækinu
að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis.
Verkís er með útibú í öllum landshlutum og er
það metnaður stofunnar að veita staðbundna
þjónustu sem víðast á landinu með stuðningi
annarra sérfræðinga Verkís.
6 ATVINNUBLAÐIÐ 9. apríl 2022 LAUGARDAGUR