Fréttablaðið - 09.04.2022, Síða 68

Fréttablaðið - 09.04.2022, Síða 68
VILTU VINNA VIÐ SKEMMTILEG OG KREFJANDI SKIPULAGSVERKEFNI? Landmótun auglýsir eftir sérfræðingi í landupplýsingakerfum og með reynslu af skipulagsmálum. Leitað er að fjölhæfum og lausnamiðuðum aðila til að sjá um gerð og greiningar á landfræðilegum gögnum ásamt framsetningu á skipulagsgögnum. Menntunar- og hæfniskröfur • Meistaragráða í landfræðilegum upplýsingakerfum, skipulagsfræði, landslagsarkitektúr, landfræði eða sambærileg menntun. • Þekking á hönnunarforritum og landupplýsingakerfum. • Reynsla af skipulagsvinnu æskileg. • Gott vald á íslenskri tungu og framsetningu á texta og kynningarefni. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Landmótun er teiknistofa sem hefur veitt alhliða ráðgjöf um skipulag og hönnun í 28 ár. Verkefnin spanna allt frá stórum skipulagssvæðum í óbyggðri náttúru, skipulagi fyrir sveitarfélög og stefnumótun og hönnun í byggðu umhverfi. Lögð er áhersla á að móta öruggt og innihaldsríkt umhverfi sem tekur mið af aðstæðum á hverjum stað, vinna með samspil mannlífs og náttúru, stuðla að sjálfbærni og auka lífsgæði. Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2022 og skulu umsóknir berast á netfangið margret@landmotun.is. Nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Landmótunar www.landmotun.is. Áhugasömum er einnig bent á að hafa samband við Margréti í síma 575 5305. Sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Rannís er líflegur vinnustaður með um 60 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu. Rannís leitar að metnaðarfullum og öflugum sviðsstjóra rannsókna- og nýsköpunarsviðs til að leiða 22 manna teymi sérfræðinga í fjölbreyttum verkefnum. Sviðið er annað tveggja meginsviða stofnunarinnar og fer með umsýslu rúmlega tíu innlendra samkeppnissjóða þar sem þeir stærstu eru Rannsóknasjóður, Tækniþróunarsjóður, markáætlanir og Innviðasjóður. Þá sér sviðið um þrjá réttindasjóði og er skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna þeirra stærstur. Loks sér sviðið um þátttöku Íslands í sex alþjóðlegum áætlunum þar sem Horizon Europe, rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB er umfangsmest. Sviðsstjóri er hluti af stjórnendateymi stofnunarinnar og tekur virkan þátt í innlendu og alþjóðlegu samstarfi. Menntunar- og hæfniskröfur: l Háskólamenntun á meistarastigi áskilin l Stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni l Mjög góð þekking og reynsla af íslensku rannsókna- og nýsköpunarumhverfi l Reynsla af alþjóðlegu samstarfi l Samskiptafærni og færni til að miðla og skapa góða liðsheild l Rekstrarreynsla ásamt færni í helstu Office forritum l Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði tal- og ritmáli l Mjög góð hæfni í greiningu og lausn verkefna l Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu Nánari upplýsingar um starfið veitir Ágúst Hjörtur Ingþórsson forstöðumaður í síma 515 5830 eða netfanginu agust.h.ingthorsson@rannis.is. Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl 2022. Sækja skal um starfið á heimasíðu Rannís, á www.rannis.is/starfsemi/laus-storf/. Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini. Umsækjendum er bent á að kynna sér starfsemi Rannís og sérstaklega starfsemi rannsókna- og nýsköpunarsviðs og þeirra sjóða og alþjóðlegu áætlana sem sviðið hefur umsjón með. Borgartúni 30, 105 Reykjavík, sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Tónlistarskóli Eyjafjarðar auglýsir eftir tónlistarkennurum í eftirfarandi stöður: Tónlistar-/tónmenntakennari í 75-100% starfshlutfall. Tónlistarskóli Eyjafjarðar leitar að tónlistar-/tónmennta- kennara til að kenna og móta fjölbreytta tónlistarkennslu við skólann. Sinna þarf fjölþættri kennslu, m.a. forskóla-/ tónmenntakennslu í samvinnu við leik- og grunnskóla á starfssvæðinu sem er Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit, Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Fyrir hæfan og metnaðarfullan aðila eru möguleikar á að þróa og móta starfið en unnið hefur verið með ýmsa þætti eins og marimbukennslu, kórstarf, samsöng, rythmískt sam- spil o.fl. Hljóðfærakennsla getur verið hluti af starfinu ef umsækjandi óskar. Tónlistarkennari/Gítarkennari í 50-100% starfshlutfall. Leitað er eftir kennara með breiðan bakgrunn sem gæti kennt fjölbreytta hljóðfærakennslu byrjenda með áherslu á klassíska gítarkennslu. Yfirmenn eru skólastjóri og aðstoðarskólastjóri tónlistar- skólans en í nánum samskiptum við aðra stjórnendur leik- og grunnskóla. Umsækjandi hafi menntun og reynslu sem nýtist í starfi. Laun eru samkvæmt kjarasamningum tónlistarkennara við Samband íslenskra sveitarfélaga. Umsækjandi þarf að hafa bíl til umráða, akstur greiddur samkvæmt samningi. Góð samskiptahæfni er lykilatriði. Höfuðstöðvar skólans eru á Hrafnagili innan við 10 mínútna akstur frá Akureyri. Umsóknarfrestur er til 8.maí 2022. Upplýsingar um starfið veitir Guðlaugur Viktorsson, skólastjóri s.8980525. Fyrirspurnir og umsóknir berist á netfangið te@krummi.is Skólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Fagefni ehf. óskar eftir að ráða drífandi fjármálastjóra til starfa. Um er að ræða starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að taka þátt í þeim fjölbreyttu verkefnum sem snerta rekstur fyrirtækisins, hvort sem þau snúa að fjármálum, innkaupum eða símsvörun. Leitað er að eins- taklingi sem hefur frumkvæði og metnað til að ná árangri í ört stækkandi fyrirtæki þar sem tækifærin eru endalaus og starfsandinn góður. HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ: • Ábyrgð á daglegri fjármálastjórn, uppgjöri, reiknings- haldi og launaútreikningi. • Ábyrgð á gerð greininga ásamt gerð fjárhags- og rekstraráætlana og ráðgjafar við yfirstjórn. • Innkaup og samningagerð. • Þar sem að yfirstjórn er lítil þarf aðili að koma að margvíslegum málum í rekstri fyrirtækisins t.d. önnur tilfallandi verkefni sem getur verið símsvörun og móttaka viðskiptavina. MENNTUNAR OG HÆFNISKRÖFUR: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Reynsla af bókhaldi, áætlanagerð og uppgjörum skilyrði. • Góð greiningarhæfni, framsetning og miðlun fjárhags- upplýsinga. • Framúrskarandi samskiptahæfileikar, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. • Drifkraftur, hugmyndaauðgi og lausnamiðuð hugsun. • Mjög góð tölvukunnátta og þekking á dk bókhaldskerfi. • Færni í íslensku og ensku í ræðu og riti. Umsóknir og fyrirspurnir sendist á alda@fagefni.is fyrir 20/04/2022 Fjármálastjóri Fagefni ehf er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem flytur inn, þjónustar og selur hágæða múrefni, þéttiefni og vínylgólfefni frá heims þekktum framleiðendum. Okkar markmið er alltaf að veita framúrskarandi þjónustu og og safna ánægðum viðskiptavinum. 24 ATVINNUBLAÐIÐ 9. apríl 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.