Fréttablaðið - 09.04.2022, Page 91

Fréttablaðið - 09.04.2022, Page 91
Einar Ásgeirsson tekur inn blöndurnar Kollagen og Liði frá Protis. Hann er alsæll með árangurinn og segir vörurnar gera sér kleift að stunda hreyfingu án verkja. Áður en Einar hóf inntöku á Kolla- geni og Liðum var hann farinn að finna fyrir verkjum sem voru farnir að hafa neikvæð áhrif á getu hans til að hreyfa sig og þar af leiðandi á lífsgæði hans. „Ég var með liðaverki í öxlum og hnjám, svona eins og gengur og gerist en svo var ég líka sárþjáður af vefja- og vöðvaverkjum. Ég var farinn að ímynda mér að ég væri kominn með vefjagigt eða eitthvað í þeim dúr.“ Einar segir kynni sín af vörunum hafa verið hálfgerða til- viljun. „Ég var búinn að prófa ýmis- legt og prófaði þetta af rælni. Þetta reyndist síðan virka svona rosalega vel. Ég er orðinn mjög góður í dag.“ Áþreifanlegur munur Einar er búinn að nota vörurnar í tæp tvö ár og hafa komið upp tímabil þar sem hann hefur ekki tekið þær inn. „Ég er búinn að prófa að sleppa þessu og þá fer ekkert á milli mála hvað þetta virkar vel. Ég hef svo fundið áþreifanlegan mun þegar ég byrja aftur.“ Þá hefur hann enn fremur reynslu af því að taka inn bara aðra hvora vöruna og þær saman. „Ég hef líka bara átt Liði eða bara átt Kollagen en ég finn að þetta virkar ennþá betur saman. Þetta er frábær blanda. Ég þarf að taka þetta með mat til að styðja við upptökuna þannig að ég tek þetta með sjúss af ólífuolíu,“ segir Einar og hlær. Einar hefur einnig prófað aðrar sambærilegar vörur, bæði erlendar og innlendar, og segir hann Protis hafa reynst sér best. „Þetta erlenda virkaði ekki neitt og þetta inn- lenda virkaði ágætlega en var bara alltof dýrt.“ Eins og þegar maður var yngri Einar stundar ýmsa hreyfingu sér til ánægju og segir blöndurnar nú orðnar ómissandi. „Ef ég ætla að vera góður, njóta lífsins og geta hreyft mig þá finnst mér algjört lykilatriði að taka þetta inn. Þetta styður alla hreyfingu, hvort sem það er skokk, hlaup eða ganga á fell og fjöll.“ Einar segir ávinninginn ekki síst felast í því hversu jákvæð áhrif þetta hafi á endurheimt vöðva þegar búið er að taka á því. „Þetta verður svolítið eins og þegar maður var yngri og fékk ekki harðsperrur eða annað vesen. Líðanin batnar og þá er auðveldara að virkja sig betur í hreyfingu. Þannig kemur þetta allt.“ Einar mælir heilshugar með vör- unum. „Ég hugsaði með mér hvort maður ætti nokkuð að vera að tjá sig en síðan er ég alltaf að lesa um fólk sem þjáist til dæmis af vefjagigt og ef það getur lagað það með þessu í staðinn fyrir að þjást, þá væri algjör synd að koma því ekki á framfæri. Mér er því ljúft og skylt að deila þessu með fólki ef þetta skyldi vera eitthvað sem gæti hjálpað því,“ segir Einar. „Ég hélt að ég væri kominn með vefjagigt en það lagaðist eftir að ég fór að taka þetta inn. Það eru svo mikil lífsgæði sem fylgja því að vera í formi.“ Verndar liði, bein og brjósk Protis Liðir er unnið úr kollagen- ríkum skrápi sæbjúgna með viðbættu vatnsrofnu þorskprótíni fyrir viðhald vöðva og túrmeriki fyrir bólgueyðandi áhrif. Blandan inniheldur einnig mangan og nauð- synleg vítamín fyrir heilbrigð bein, brjósk og liðvökva. Fyrir húð, hár og neglur Kollagen frá Protis er einstök blanda úr hágæða innihaldsefnum sem styðja við styrkingu á húð, hári og nöglum. Kollagenið er framleitt úr íslensku fiskroði og inniheldur einstakt innihaldsefni – SeaCol, sem er blanda af vatnsrofnu kolla- geni úr íslensku fiskroði og vatns- rofnu þorskprótíni úr íslenskum þorski. SeaCol tekur þátt í að styrkja vefi líkamans og viðhalda teygjanleika. Einnig er sérvalin blanda af vítamínum og stein- efnum sem öll styðja við styrkingu á húð, hári og nöglum. n Vörur Protis fást í öllum helstu matvöruverslunum og apótekum. Ómissandi til að geta hreyft sig og notið lífsins Einar Ásgeirsson segist mun fljótari að ná sér eftir hreyfingu þegar hann tekur inn bæði Kollagen og Liði frá Protis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ef ég ætla að vera góður, njóta lífsins og geta hreyft mig þá finnst mér algjört möst að taka þetta inn. Karólína Lárusdóttir Listmunauppboð nr. 597 Rauðarárstígur 12–14, sími 551 0400 · www.uppbod.is Helgi Þorgils Friðjónsson Bragi Ásgeirsson Ragnheiður Jónsdóttir Ream Sýning í Gallerí Fold 9. - 30. apríl ÞORRI HRINGSSON NÝ MÁLVERK Kristján Davíðsson Forsýning á verkunum hjá Fold uppboðshúsi og á vefnum uppbod.is stendur yfir • lýkur 11. apríl VEFUPPBOÐ ÚR EINKASAFNI ANTHONY J. HARDY Glæsilegt safn íslenskra verka Louisa Matthíasdóttir ALLT kynningarblað 5LAUGARDAGUR 9. apríl 2022
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.