Editiones Arnamagnæanæ. Series B - 01.06.1983, Blaðsíða 101
§ 3.8.9
AM 394 4to (Aa2)
xcv
hefur ekki verið Jón lærði sjálfur, sé honum réttilega
eignuð höndin á þeim ritum sem hafa verið talin upp
hér að framan. Að vísu ber skriftin, þar sem hún er
settust, nokkurn keim af rithendi þeirra bóka, en þó
er margt með öðrum hætti. Skriftin er líka án þeirra
skjálfhandareinkenna sem 401 og 201 (§§ 3.8.7-8)
bera, en þau handrit eru frá svipuðum tíma.35 Ur sker
þó, að stafsetning á 727 II víkur í sumum greinum
mjög glöggt frá stafsetningu hinna handritanna sjö,
m.a. í því, að mun meiri ruglingur er á ‘i’ og ‘y’ og í
bakstöðu er iðulega skrifuð 2 fyrir ‘s’, þó að ekki fari
tannhljóð á undan,36 en slíkt er óþekkt í 394 (sbr.
§ 3.5.21) og að því er virðist í fljótu bragði einnig í
hinum handritunum sex. Smávegis líkindi eru með
(aðal)hendinni á ‘Tíðfordrífi’ og hendi þess manns
sem hefur hlaupið undir bagga með Jóni að skrifa
‘Heimshistoríu’ (§ 3.8.8), en sami maður hefur varla
haldið á penna.
Vitað er að hlutar af ‘Tíðfordrífi’, að sumu leyti
fyllri en 727 II er nú, vóru skrifaðir upp í Kaupmanna-
höfn 1686-87, og að því hefur verið leitt getum, að
þetta hafi verið eiginhandarrit Jóns lærða, annaðhvort
önnur útgáfa Jóns, aukin og endurbætt,37 ellegar
efniviður í ‘Tíðfordríf’, sem höfundur hefur haldið
eftir, þegar hann sendi hreinrit sitt í Skálholt til
Brynjólfs biskups.38 727 II er einmitt það hreinrit
sem Jón sendi biskupi, og ekki er óeðlilegt að hann
35 2 01 er að vísu skrifað þremur og fjórum árum síðar en 727 II,
og 401 gæti einnig verið yngra en 727 II.
36 Stafrétt útgáfa fáeinna blaðsíðna í 727 II er í The History of the
Cross-Tree, ed. Mariane Overgaard (EA B 26, 1968), pp. 59-85 (texti
E), og mé bera þann texta saman við stafsetningarlýsingu 394 hér að
framan í § 3.5.
37 Munnmœlasögur 17. aldar, p. lxiv (Bjarni Einarsson). - Sbr. þó
mótbárur Einars G. Péturssonar, ‘Rit eignuð Jóni lærða í Munn-
mælasögum 17. aldar', Afmœlisrit til dr. phil. Steingríms J. Þorsteins-
sonar prófessors (Rv. 1971), pp. 42-53.
38 Opuscula I, p. 26 (Jón Helgason).
7 Guðmundar sögur I