Editiones Arnamagnæanæ. Series B - 01.06.1983, Blaðsíða 107
§ 4.2.2
AM 401 4to (401)
CI
199.15) og f. 138 (GA, cc. 217.29-219.7) munu vera
með hendi Eyjólfs Björnssonar, sem var við nám í
Kaupmannahöfn í tvö ár frá haustinu 1687 og skrifaði
þá upp handrit fyrir Arna Magnússon og Þormóð
Torfason.5 Af þeim handritum Eyjólfs, sem hafa verið
borin saman við þessi þrjú blöð í 401, er skriftin
líkust á Fagurskinnuuppskriftum hans, AM 51 fol. og
AM 302 4to, sem eru frá Hafnarárum hans 1687-89,6
AM 89 fol. (sbr. § 4.2.1, nmgr. 3) og á AM 483 4to,7
sem einnig er skrifað á þessum árum,8 enda þótt
ofurlítið beri á milli (einkum gerð stafanna h og u).
Hins vegar er skriftin á 401 gjörólík fornbréfaupp-
skriftum Eyjólfs og AM 628, 631 og 636 4to, upp-
skriftum úr Codex Scardensis (SAM 1), sem Eyjólfur
gerði fyrir Árna Magnússon á Islandi á árunum 1710-
12.9
4.2.3. Eins og ráða má af § 4.2.2, eru blöðin í 401
með hendi Eyjólfs Björnssonar án efa skrifuð á
árabilinu 1687-89, og jafnframt má telja fullvíst að
6 Páll Eggert Ólason, íslenzkar œviskrár I (Rv. 1948), pp. 451-
52. - Bjarni Jónsson, íslenzkir Hafnarstúdentar (Akureyri 1949),
pp. 48-49.
6 Alfred Jakobsen, ‘Noen merknader om hándskriftene AM 51,
fol. og AM 302, 4to’, Opuscula IV (BA XXX, 1970), pp. 159-60.
7 “Svarfdæla Saga, manu Eyolfi”, segir Arni Magnússon um 483
(AMHdskrfort, p. 77).
8 Forrit 483, AM 484 4to, mun vera frá vetrinum 1686-87
(Svarfdœlasaga, ed. Jónas Kristjánsson (Rv. 1966), pp. xxvii-xxix).
- Asgeir Jónsson skrifaði 483 upp í Thott 1768 4to, og niðurlag
næstu sögu á eftir Svarfdæla sögu í 1768, Flóamanna sögu, er
tímasett “Kaupenhafn 1687 d. 2 Junij” (Svarfdœlasaga (1966), pp.
xxxiii-xxxiv), en svo snemma hefur Eyjólfur ekki verið kominn til
Hafnar (sbr. nmgr. 5). Hins vegar er 1768 skrifað í áföngum
(Membrana Regia Deperdita, ed. Agnete Loth (EA A5, 1960), p.
xxxiii; Jónas Kristjánsson, Um Fóstbræðrasögu, pp. 20 og 25), og
flestar sögurnar í því eru sér um kver og hver með sínu handarlagi;
Flóamanna saga er með öðru handarlagi en Svarfdæla saga í 1768
og sér um kver, og Svarfdæla saga getur því verið síðar skrifuð, þó
að hún sé nú framar í handritinu.
9 Codex Scardensis, ed. D. Slay (EIM II, Kh. 1960), p. 14.