Editiones Arnamagnæanæ. Series B - 01.06.1983, Blaðsíða 160
CLIV
Inngangur
8.3.1
hefur safnandi GA gripið til Hrafns sögu Sveinbjarn-
arsonar (Hr) til þess að leiða frásögn PG af vígsluför
Guðmundar til lykta, og tekur texti hennar yfir GA,
cc. 114.18-116.11.1 Sambærilegur texti er í báðum
gerðum sjálfstæðrar Hr, HrA2 og HrB3, og í GB, en
Hr-texti GA er til muna styttri en samsvarandi texti í
GB og HrA og einnig styttri en texti HrB, sem þó
hefur sums staðar styttingar fram yfir GA. Þar sem
safnandi GA hefur annars ekki dregið texta sína
saman að því er séð verði, er ólíklegt að óstyttur Hr-
texti hafi legið fyrir honum, sbr. § 2.5.1.
8.3.2. í GB er Hr. einnig notuð í framhaldi af PG,
og Hr-texti hefst í GB á nákvæmlega sama stað og í
GA. Þetta var ein höfuðröksemd Björns M. Olsen
fyrir því, að sameiginleg Guðmundar saga (a) lægi að
baki GA og GB.4 Ef PG hefur hins vegar dottið niður í
miðri frásögn, einmitt þar sem PG-texti endar í GA og
GB, eins og gert er ráð fyrir hér að framan (§ 8.2.4),
horfir málið öðruvísi við. Þá var eðlilegast að nýta PG
til enda, og væri Hr notuð á annað borð, var nærtækast
að grípa niður í henni einmitt á þessum stað. I
lokapósti PG er sagt frá hrakningum við Irland, og
næsta málsgrein á undan þeim Hr-texta sem er tekinn
upp í GA og GB er í Hr: ‘Rak þá suðr í haf, svá at þeir
höfðu fogl af írlandi’:5 Irland er hér tengiliður frásagn-
anna, þó að hitt sé ugglaust rétt hjá Bimi M. Olsen,
að í rauninni er sagt frá sömu hrakningum á mis-
munandi vegu í sögunum tveimur, PG og Hr. Gegn
1 Síðustu orðin í c. 116, ‘Þá hafði hann .iii. vetr hins fimmta
tigar’, eru viðbót safnanda GA, sett til samræmis við hliðstæð
tímatalsákvæði víða í PG.
2 Membrana Regia Deperdita, ed. Agnete Loth (EA A5, 1960),
pp. 205.9-210.26.
3 Hrafns saga Sveinbjarnarsonar, B-redaktionen, ed. Annette
Hasle (EA B25, 1967), pp. 26.2-30.24.
4 SSÍ m, pp. 228-30, 286 og 302.
5 HrA (EA A5, p. 205.8-9). - í HrB (EA B25, p. 26.1-2) er texti
styttur, og þar er Irland ekki nefnt.