Heilbrigt líf - 01.06.1952, Side 6
I.
Hinn 25. janúar s.l. drúptu fánar í hálfa stöng um alla Reykjavík,
þegar eftir fótaferðartíma, og var strax ljóst, að mikil sorgarfrétt
hafði borizt.
Forseti Islands, herra Sveinn Björnsson, hafði andazt þá um nótt-
ina. Hann var íslenzku þjóðinni mikill harmdauði.
Sveinn Björnsson var á 71. aldursári, er hann andaðist. Hann var
fæddur 27. febrúar 1881 í Kaupmannahöfn, sonur Björns Jónssonar
ritstjóra, síðar ráðherra, og konu hans Elísabetar Sveinsdóttur. Ævi-
ferill hans verður ekki nákvæmlega rakinn í þessari stuttu minn-
ingargrein, en aðeins stiklað á aðalatriðunum.
Hann lauk stúdentsprófi í Reykjavík árið 1900, lögfræðiprófi í
Kaupmannahöfn árið 1907 og gerðist yfirréttarmálaflutningsmaður
í Reykjavík sama ár. Hinn 2. september 1908 kvæntist hann Georgiu,
dóttur Hans H. E. Hansen lyfsala og jústizráðs í Hobro á Jótlandi.
Varð þeim sex barna auðið og eru þau öll á lífi. Georgia forsetafrú
lifir mann sinn.
Sveinn Björnsson stundaði málaflutning í Reykjavik fram til 1920
og flutti fyrsta málið fyrir Hæstarétti 25. maí 1920, ásamt Eggert
Claessen. Á þessum árum Iét hann þjóðmál og bæjarmál mjög til sin
taka. Átti sæti á Alþingi 1914—’IG og 1919—’20, var í bæjarstjórn frá
1912—’20 og forseti bæjarstjórnar 1918—’20. Hann var skipaður sendi-
herra Islands í Kaupmannahöfn 1920 og gegndi því starfi til 1924.
Var hæstaréttarmálaflutningsmaður frá 1924—’26, en var þá skipaður
sendiherra Islands í Kaupmannahöfn af nýju og fékk lausn frá því
starfi 17. júní 1941. Sama dag var hann kjörinn ríkisstjóri íslands
af Álþingi, en síðan var hann endurkosinn næstu tvö árin. Þegar
lýðveldið var stofnað 17. júní 1944 var Sveinn Björnsson kosinn fyrsti
forseti íslands á Alþingi, en síðan var hann tvisvar þjóðkjörinn for-
seti, 1945 og 1949, í bæði skiptin gagnsóknarlaust.
II.
Þegar litið er yfir þennan óvenjulega starfsferil, verður manni
starsýnt á tvennt.
4
Heilbrigt líf