Heilbrigt líf - 01.06.1952, Blaðsíða 87
ÍTALÍU-SÖFNUNIN 1951
í nóvembermánuði 1951 bárust Rauða krossi íslands tilmæli frá
aðalskrifstofunni í Genf þess efnis, að félagið beitti sér fyrir
söfnun til hjálpar bágstöddu fólki á flóðasvæði Norður-Ítalíu. For-
maður RKÍ ræddi mál þetta við ríkisstjórnina, sem lýsti sig sam-
þykka því, að hafin yrði söfnun og kvaðst mundu heimila útflutn-
ing á því, sem kynni að safnast. Var þá ákveðið að leita samstarfs
við Reykjavíkurdeild RKÍ um söfnun hér í bæ, og jafnframt rætt
við aðrar Rauða kross deildir. Brugðust þær allar vel við þeirri
málaleitan að hefja söfnun, þótt öllum væri ljóst, að tími væri mjög
óheppilegur vegna jólaanna og því ekki að vænta þess árangurs,
sem ella hefði mátt búast við.
Hófst söfnunin snemma i desember með því, að fréttamenn blaða
og útvarps voru kvaddir til fundar og leitað liðsinnis þeirra. Brugð-
ust þeir vel við og drengilega og áttu mikinn þátt í því, að söfn-
unin tókst svo giftusamlega, sem raun vai'ð á.
Þá flutti séra Jón Auðuns ávarp í útvarpið, en RKÍ sendi dreyfi-
bréf til margra stofnana og einstaklinga hér í bæ. Ríkisstjórn og
bæjarstjórn Reykjavíkur hétu þegai' í upphafi fjárframlögum og
voru hinar ágætu undirtektir þessara aðila í byrjun söfnunarinnar
mjög mikils verðar, auk þess sem þeir gáfu mikið fé.
Söfnunin stóð í hálfan mánuð og voru undirtektir yfirleitt hinar
ákjósanlegustu. Létu flestir eitthvað af hendi rakna, ýmsir gáfu
rausnarlega og enn aðrir af hinum mesta höfðingskap. Kann stjórn
RKÍ öllum hinum mörgu gefendum beztu þakkir fyrir ágætar und-
irtektir og mikilsverða aðstoð.
Nöfn gefenda voru birt jafnharðan í dagblöðunum, annarra en
þeirra, sem óskuðu þess sérstaklega, að þeirra væri eigi getið.
Vegna takmarkaðs rúms er þess ekki kostur að birta nú nema
heildarskýrslu yfir söfnunina og geta einungis örfárra aðilja, sem
mest létu af hendi rakna.
Heilbrigt líf
85