Heilbrigt líf - 01.06.1952, Blaðsíða 37
aðar, því að fyrir 10 árum voru skráðir 637 sjúklingar
með lungnabólgu og 114 dánir. Þetta má mest þakka
sulfalyfjum og penicillini, sem virðast sérstaklega hafa
dregið úr taksóttardauða.
Rauðir hundar. Minniháttar faraldur gekk af rauðum
hundum, en þar sem bæði gengu vægir mislingar og
stundum virðist grunur um væga skarlatsótt, er sjúk-
dómsgreiningin nokkuð á reiki, enda eru einkenni oft
ógreinileg í rauðum hundum. Skráð um 357 tilfelli.
Skarlatsótt var með allra minnsta móti, aðeins 13 til-
felli skráð, sem er það lægsta síðan 1930. Síðustu árin
hefur skráð skarlatsótt verið þannig:
1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947
Sjúkl. 197 64 33 158 321 456 261 65 22 13
Dánir 0100121000
Kíghósti. Hann gerði lítið vart við sig og aðeins 15
tilfelli skráð, sem eru eftirhreytur frá árinu áður, en þá
gekk hann yfir allt landið og voru þá skráð 1566 til-
felli og 11 dánir.
Mænusótt gerði talsvert vart við sig, því að alls voru'
skráð 227 tilfelli og 5 dánir. Þetta er þó talið vera
áframhald af faraldri ársins áður, enda flest tilfellin á
fyrstu 2—3 mánuðum ársins. Veikin var væg og að
ýmsu leyti frábrugðin venjulegri mænusótt. Sumir lækn-
ar virtust jafnvel vera í efa um, að hér væri um raun-
verulega mænusótt að ræða og kann að vera, að hér
hafi verið á ferðinni í sumum tilfellum sama veiki og
haustið 1948 á Akureyri (Akureyrarveikin).
Hvað sem því líður, virðist þessi sjúkdómur eða sjúk-
dómar fara í vöxt, því að þetta er þriðja árið í röð, sem
sjúklingarnir skipta hundruðum.
Sjúklingafjöldi síðustu 10 árin:
1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947
Sjúkl. 81 12 3 1 1 0 2 368 450 227
Dánir 3000001 10 13 5
Heilbrigt líf
35