Heilbrigt líf - 01.06.1952, Side 36
kringum gömlu konuna, tengdamóður sjúklingsins. En
vegna þess, hve sjúk hún var á líkama og sál, hafði ég
ekki herkju í mér til þess að herða á því að fá hana
rannsakaða til fullnustu, með tilliti til þess, að hún kynni
að vera sýkilberi. En illt þótti mér að vera þess ómegn-
ugur að upplýsa, hvaðan bóndanum hafði borizt smitið“.
Innflúensa gekk yfir landið og hófst í Reykjavík í
febrúar. Skráð voru 6997 tilfelli og 10 dánir. Síðasti
faraldur, sem nokkuð kveður að, var 1943, en þá voru
skráð tæp 13 þúsund tilfelli og 36 dánir. Hún var frem-
ur væg og lítið um fylgikvilla.
Mislingar. Þetta var mislingaár, en að því leyti frá-
brugðið, að óvenjustutt var frá síðasta faraldri, eða þrjú
ár. Þeir hafa aldrei verið minna mannskæðir, því að
aðeins fimm eru skráðir dánir úr þeim. Dánartala misl-
inganna fer mjög lækkandi. í faraldrinum 1936, var
hún 7.1%0, 1934 2.5%,, og á þessu ári var dánartalan
aðeins 1.1%0. í þessu sambandi má geta þess, að í tveim
síðustu faröldrum hefur talsvert verið gert að því að
gefa blóðvatn úr sjúklngum í afturbata, sem vafalaust
á mikinn þátt í lækkun dánartölunnar, því að þótt lítið
hafi náðst af blóðvatni, voru þeir, sem veiklaðir voru,
látnir sitja fyrir því.
Það má búast við, að eftir því sem þjóðinni fjölgar,
styttist milli mislingafaraldra. Sjúklingafjöldi síðustu
10 árin er þannig:
1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947
Sjúkl. 1 1 14 0 1 6616 540 3 23 4376
Dánir 00000 18 0005
Lungnabólga (Kveflungnabólga og taksótt). Eins og
búast má við í mislinga- og innflúensuári, bar talsvert
meira á kveflungnabólgu en venjulega. Taksótt var aftur
á móti fátíðari en áður. Samtals voru skráðir 1565 sjúkl-
ingar (1296 með kveflungnabólgu og 269 með taksótt)'
og 58 dánir. Hér er að verða mikil breyting til batn-
34
Heilbrigt líf