Heilbrigt líf - 01.06.1952, Qupperneq 38
Aðrir næmir sjúkdómar.
Kynsjúkdómar. Kynsjúkdómasjúklingar voru með fjöl-
mennasta móti, alls voru skráðir með lekanda og sára-
sótt 615 sjúklingar. Alvarlegust er þó aukning sárasóttar-
sjúklinga, eins og yfirlit um sjúklingafjölda síðustu
10 ára ber með sér. Það er þannig:
1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947
Sjúkl. lekanda 648 492 402 324 246 238 333 422 413 535
Sjúkl. sárasótt 6 14 67 83 .142 84 74 47 43 80
í sambandi við sárasóttarsj úklingana er þess getið, að
margskráning sé líklega tíðari en áður, enda getur kyn-
sjúkdómalæknir ríkisins (H. G.) þess, að töluverður hluti
sjúklinga vitji hans utan af landi. í skýrslu kynsjúk-
dómalæknisins eru 440 lekandasjúklingar, þar af 126
konur og börn og 314 karlar. Eftir aldri skiptast sjúkl-
ingarnir þannig:
Aldur, ár 1-5 5-10 10-15 15-20.20-30 30-40 40-60 Yfir 60
Konur 3 0 1 49 59 13 1 0
Karlar 0 0 0 60 207 43 3 1
15 nýir sárasóttarsjúklingar vitjuðu kynsjúkdómalækn-
is á árinu. „Er fólkið að verða kærulausara um kynsjúk-
dóma vegna þess, að það þykist nú öruggt um lækningu,
þó að það veikist?" spyr héraðslæknirinn í Reykjavík.
Berklaveiki. Berkladauði er lægri en nokkru sinni áð-
ur, alls dó 71 maður úr berklum á árinu. Yfirlit yfir
berklaveiki síðustu 10 árin er þannig:
1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946.1947
Sjúkl. 320 346 229 351 231 267 231 200 181 211
Dánir 106 94 104 120 104 106 96 88 89 71
Dánartala berklanna miðað við 1000 íbúa á sama tíma-
bili er:
• Ár .. 1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947
0,9 0,8 0,9 1,0 0,8 0,8 0,8 0,7 0,7 0,5
36
Heilbrigt líf