Heilbrigt líf - 01.06.1952, Side 46
Til læknaskipunar- og heilbrigðismála var á árinu
varið rúmlega 13.3 milljónum króna (áætlað á fjárlög-
um 11.6 millj.) og til félagsmála rúmlega 27.6 millj.
(áætlað 23.6 millj.), eða samtals 41 milljón. Á fjárlög-
um næsta árs voru sömu liðir áætlaðir 35.8 millj. króna.
Sjúkrahús.
Alls teljast 49 sjúkrahús á landinu og hafa þau sam-
tals 1208 sjúkrarúm. Um sjúkraskýlin í héruðunum er
það að segja, að mörg þeirra eru óstarfhæf vegna skorts
á starfsfólki og standa því auð. Sjúkraskýlisfyrirkomu-
lagið, þ. e. að byggja læknisbústaðina í fámennustu hér-
uðunum með sjúkrastofum, hefúr yfirleitt gefizt illa.
Það er tiltölulega sjaldan þörf fyrir þessi rúm, enda fæst
þeirra notuð nema ef til vill eina og eina dagstund, með-
an beðið er eftir að koma sjúklingnum á næsta sjúkra-
hús eða í flugvél til Reykjavíkur. Nú er að verða svo að
segja stöðugur straumur af sjúklingum með flugvélum
utan af landi til Reykjavíkur. Þetta er að vísu mikil
framför og oft til aukins öryggis, þegar bráðra aðgerða
er þörf og því skal ekki neitað, að margir hafa komið
þannig, sem nauðsynlega þurftu þess með, en þó hafa
talsvert margir slæðzt með, sem hefði batnað eins fljótt
og vel heima, að ekki sé talað um kostnaðinn. En nú er
flogið með alla sjúklinga og þeim oft með því stofnað í
mun meiri lífsháska í tvísýnu flugveðri en þeim, er staf-
ar af sjúkdómi þeirra. Það fylgir því mikil ábyrgð fyrir
læknana að hafa milligöngu um slíka flutninga, því að
hér er ekki einungis um líf sjúklinganna að ræða, heldur
einnig þeirra, sem flytja þá. Ef trúa má frásögnum um
sjúkraflugin, sem koma reglulega í dagblöðunum, er oft
teflt á tæpasta vað.
Árið 1947 voru sjúkrahús 1 smíðum á Akranesi, Ak-
ureyri og Keflavík, en ekkert þeirra er ennþá (1952)
tekið til starfa, þótt líklegt sé, að sjúkrahúsið á Akra-
nesi taki til starfa innan skamms. Svona langan tíma
44
Heilbrigt líf