Úrval - 01.08.1947, Blaðsíða 56
54
ÚRVAL
Dr. Eve datt þessi aðferð í
hug, þegar hann var að stunda
tveggja ára gamalt stúlkubarn.
Foreldrarnir höfðu beðið
hann að koma, því að barnið
var að deyja úr hryglu, því
barkinn var nærri fullur af
slími. í slíkum tilfellum hefir
það verið venja dr. Eves að
halla sjúklingnum, svo að slím-
ið renni fram i hálsinn. Hann
gerði þetta við barnið og bjarg-
aði með því lífi þess.
En þá komu nýir erfiðleikar
til sögunnar. Barninu var erfitt
um andardrátt, af því að þindin
starfaði ekki, en það voru af-
leiðingar bamaveiki, sem barn-
ið hafði sýkst af fyrir nokkrum
vikum. Dr. Eve áleit, að ef
hann hallaði barninu stöðugt
niður, myndu lungun þrýstast
saman og lungnabólga hljótast
af.
Hann spurði því foreldranna,
hvort þeir ættu ekki ruggustól.
Stóllinn var til. Dr. Eve lagði
samanbrotin teppi á stólinn og
batt barnið á hann, svo að það
gæti ekki dottið. Hann álykt-
aði sem svo: „Hves vegna ekki
að rugga barninu fram og aft-
ur tíu sinnum á mínútu, svo að
þyngsli innýflanna ýti þindinni
upp eins og bulla?“
Hann skýrði foreldrunum
frá hugmynd sinni og fram-
kvæmdi hana síðan. Ruggið
hjálpaði barninu að anda, unz
lömunin í þindinni hvarf tveim
dögum síðar. Litla stúlkan varð
alheil og er nú hraust og eðli-
legt barn.
Dr. Eve minntist þess, að
Gibbons sjóliðsforingi hafði
eití sinn rætt um lífgunarað-
ferðir og talið þær gagnslitlar.
Úr því að ruggustóll hafði
hjálpað smátelpu til að anda,
var þá ekki hægt að nota sömu
aðferð til að lífga drukknaða?
Áður en dr. Eve gat orðið viss
1 sinni sök, varð hann að kynna
sér til hlýtar, hvað druknun er
í raun og veru. Hann áleit, að
ein ástæðan til þess að Schaefer-
aðferðin var gagnslítil við
drukknaða menn, væri sú, að
þindin hefði lamazt. I eðlilegu
ástandi er þindin mjög fjaður-
mögnuð. Ef ýtt er á hana,
spennist þún þegar upp aftur.
Schaefer byggði gerviöndun-
araðferð sína á þessari stað-
reynd, en hann kom fyrst fram
með hana árið 1908. Sé Schaef-
eraðferðin reynd á heilbrigð-
um manni andar hann, inn og
út, yfir 500 rúmcentimetrum af
lofti í hverjum andardrætti.