Úrval - 01.08.1947, Blaðsíða 62
60
ÚRVAL
Trú ykkar og von hafa kafnað
í ótta. Óttinn er nú eina drif-
fjöðrin ykkar, og hann skapar
einmitt það ástand, sem þið er-
uð að reyna að umflýja. Fyrst
vöktuð þið hvítliða-andstöðu í
Austur-Evrópu með grimmdar-
legri framkomu ykkar, og síðan
urðuð þið að bæla hana niður
með hinum venjulegu aðferðum
ykkar. Þið tókuð upp varnarráð-
stafanir gegn amerískri heims-
valdastefnu, sem var sjálfri sér
sundurþykk, og með því tókst
ykkur að sameina hana. Haldið
þér að mér þyki gaman að kné-
krjúpa Wall Street og Washing-
ton? Nei, Molotov, ég segi yður
hreinskilnislega: Ef þér hefðuð
ekki sýnt slíka nautheimsku —
sem er afleiðing af úreltum
marxisma yðar, og sem ég hefi
séð ótal sinnum í viðskiptum
mínum við agenta yðar í Bret-
landi — hefði ég aldrei gert
bandalag við Ameríku eða reynt
að mynda vesturblökk. Þér
neydduð mig til þess; þér rákuð
rýtinginn í bak mér. Auðvitað
bjóst ég við slíku af kommún-
ista . . .
Bidault: Augnablik! Áróður
er máttugri en rök, og hugsjón-
ir máttugri en eiginhagsmunir
þjóðar. Samt trúum við Frakk-
ar enn þá á heiibrigða skynsemi
Lofið mér að beina athygli yðar
andartak að viðfangsefni þess-
arar ráðstefnu. Við erum hér
samankomnir til að ræða sam-
eiginlega um viðreisn Evrópu,
sem geti orðið grundvöllur að
sameiginlegum tillögum, er
sendar yrðu til Washington. Við
skulum vera hreinskilnir hver
gagnvart öðrum: við viljum all-
ir fá ameríska dollara, ef við
megum ráða skilyrðunum. Það
er aðeins einn kapítalisti í heim-
inum nú — og það er Ameríka.
Við hinir erum allir gjaldþrota.
En það er annað sem tengir
okkur saman en hið sameigin-
lega gjaldþrot. Enginn okkar
kærir sig um, að Evrópu verði
skipt og mynduð verði vestur-
blökk undir amerískum áhrif-
um. Við viljum allir fá ameríska
dollara án amerískrar yfir-
drottnunar, amerískar vörur án
amerískra verzlunarhátta. Er
þetta ekki grundvöllur til sam-
komulags ?
Mólotov: Það er að minnsta
kosti umræðugrundvöllur. Marx
og Lenin kenndu, að kommún-
istar gætu gert bandalag til
skamms tíma með það fyrir
augum að ná settu marki, ef
slíkt bandalag færi ekki í bág