Úrval - 01.12.1948, Síða 21
MEIRA NÖLDUR
19
opna fyrir allar gáttir — Ame-
ríka Willu Cather, Toms Wolfe,
O’Neill, Mumfords, Chaplins,
tímaritanna ,,New Republic“ og
„Atlantie Monthly" og vísinda-
stofnananna „John Hopkins" og
„Rockefeller Institute“. En það
er ekki sú Ameríka, sem nú
flæðir yfir strendur vorar, sú
Ameríka, sem nú er að byrja
að smeygja sér inn í drauma
æskumanna okkar. Það er
Broadway og Beverley Hills,
hinn glitrandi, æsiþrungni, idíót-
íski heimur, þar sem drottna
óttafullir, en þó rángjarnir auð-
jöfrar og allt leiguþýið, sem
stritar fyrir þá, einmitt sú Ame-
ríka, sem er hædd og spottuð
og fordæmd af þeim Ameríku-
mönnum, sem eru þess virði að
hlustað sé á þá, sú Ameríka, sem
stimplar alla þá, sem hafa fé-
lagslega samvizku og siðmennt-
aða dómgreind sem kommúnista
— það er þessi Ameríka, sem
okkur er boðið að taka við og
hylla. Og afleiðingin verður sú,
að fyrr eða síðar — sennilega
mjög fljótlega — munu miljón-
ir Englendinga líta á þessa Ame-
ríku sem fyrirheitna landið, og
veikróma jarmur forustumanna
okkar um hina stórfenglegu til-
raun okkar í félagsmálum,
stjórnmálum og efnahagsmál-
um drukknar í óhljóðum djass-
hljómsveitanna. Og einmitt þeg-
ar flestir hugsandi Ameríku-
menn hafa áhyggjur út af því,
hvert þjóð þeirra stefnir, hvetj-
um við okkar þjóð til að sam-
einast hinni blindu hópgöngu.
Jafnfávíslegt og það er að
loka augunum fyrir þessum
táknum um víðtæk straumhvörf,
sem kunna að hafa geysilegar
pólitískar og félagslegar afleið-
ingar, er hitt að stimpla öll mót-
mæli gegn þessum áhrifum sem
áróður frá „meðhlaupsmanni"
kommúnista. Ég er ekki „með-
hlaupsmaður“ að eðlisfari, held-
ur meira fyrir að fara mínar
eigin götur. Mín einfalda skoð-
un er sú, að Rússar eigi að vera
Rússar og Englendingar Eng-
lendingar. Ef það á eftir að
koma fyrir mig að horfa á
stærstu auglýsingaspjöldin í
London auglýsa rússneskar
kvikmyndir og leiksýningar,
blaðsöluturna fulla af rússnesk-
um skemmtisögum og tímarit-
um, blöðin taka fréttir af rúss-
neskum menningarviðburðum
fram yfir enskar, búðirnar full-
ar af rússneskum tízkuvörum,
dægurlagasöngvara syngja rúss-
neska söngva með rússneskum