Úrval - 01.12.1948, Síða 22
20
ÚRVAL
hreim og unga fólkið á götunum
reyna að líkjast Rússum, þá
mundi ég rísa upp og andmæla
kröftuglega. En í þeirri London
sem ég sé, eru öll þessi áhrif
amerísk — en ekki rússnesk.
Okkur hefur verið tjáð, að
það sé skoðun sumra ákaflyndra
amerískra herfræðinga, að þessi
eyja okkur sé framvarðarstöð,
sem fórna megi í styrjöld. Þetta
gremst sumum okkar, en það
ætti ekki að raska ró allra þeirra
ritstjóra, blaðamanna, lista-
mannaumbjóðenda, útvarpsleik-
stjóra, útgefenda og auglýsenda,
sem undanfarin ár hafa gert allt
sitt til að gera okkur að amer-
ískum útkjálkamönnum. Það er
ekki nema skynsamleg ráðstöf-
un, að litium útkjálka sé fórnað
fyrir heildina. Ef London er nú
ekki orðin annað en gamaldags
úthverfi New York, þá skiptir
það ekki miklu máli, þótt hún
verði þurrkuð út fyrir fullt og
allt, ef með því er hægt að bjarga
hinni glæsilegu höfuðborg hinn-
ar nýju menningar. Ef Englend-
ingar eru ekki annað en þjóð,
sem er af veikum mætti að reyna
að gera það, sem Ameríkumenn
gera betur, þá mun tortíming
okkar ekki verða mikið tjón fyrir
heiminn. Ef við höfum ekkert
fram að leggja frá eigin brjósti,
þá skiptir það engu máli, hvort
við verðum áfram á sviðinu, eða
hvort okkur verður sópað burtu.
Þetta ættu allir að hafa hug-
fast, sem eru önnum kafnir
að breyta þjóð okkar í annars
flokks Ameríkumenn.
Það sem við eigum hér og
er af okkar holdi og anda, er
kannski ekkert betra en það
sem Ameríkumenn eiga. Allt líf
sem á sér djúpar rætur, er gott.
En það er heimskulegt, að ætla
sér að skipta á djúprættu lífi
og fánýtu, rótlausu gumsi, trosn-
aðri, heimsborgaralegri gang-
stéttamenningu, sem framleidd
er í gróðaskyni og flutt til okk-
ar af andlegum krypplingum.
Við gerum ekki hinum amerísku
vinum okkar greiða með því að
stuðla að útbreiðslu slíks sora.
En við gerum mannkyninu, sem
hefur mikla þörf fyrir ósvikin
menningarverðmæti, tjón með
því. Og við búum okkur sjálf-
um gröf í menningarlegum, fé-
lagslegum og pólitískum efnum.
Við erum ekki einu sinni að end-
urgjalda hina einlægu góðvild
amerísku þjóðarinnar, sem ekki
mun græða á því til lengdar, en
sennilega tapa, að nokkrir af
verstu þegnum hennar færi