Úrval - 01.12.1948, Blaðsíða 29
DAVlÐ BEN-GURION
27
Zionistahreyfingin er almennt talin merkasti þátturinn í póli-
tisku og efnahagslegu lífi Gyðinga í 2000 ár. Upphafsmaður
hreyfingarinnar var dr. Theodor Herzl. Ðreyfusmálið alræmda
vakti hjá honum áhuga á hinum flóknu vandamálum í sam-
bandi við þjóðlega einingu Gyðinga. I bókinni Gyðingaríkið (The
Jewish State), sem kom út 1896, lagði hann fram áætlun um
sjálfstætt ríki Gyðinga í Palestínu. Þessi bók vakti mikla eftir-
tekt, og árið 1897 var haldið fyrsta þing zionista og alheims-
samband zionista stofnað. Land var keypt í Palestínu og land-
nám hafið með hjálp Edmund de Rotschild baróns í París, og
þjóðarsjóður Gyðinga stofnaður til kaupa á landi, sem vera átti
óafhendileg eign Israelsþjóðarinnar. Um 5000 Gyðingar settust
að í Palestinu milli 1882 og 1914. Árið 1917 tókust Bandamenn
á hendur að greiða fyrir stofnun þjóðarheimilis Gyðinga í Pal-
estínu, og 1920 var Palestina sett undir umboðsstjórn Breta,
sem tókust á hendur að framfylgja Balfouryfirlýsingunni um
stofnim þjóðarheimilisins. Á árunum 1922 til 1927 fjölgaði Gyð-
ingum úr 84000 í 159000.
— The New American Encyclopedia Illustrated.
Hann hefur yndi af að krydda
pólitískar ræður sínar með sögu-
legum líkingum, og koma fram
jöfnum höndum sem flokksleið-
togi og leiðtogi allra Gyðinga í
Palestínu; hann hefur mikinn á-
huga á hernaðarlist, og hann er
blaðamaður og sagnfræðirithöf-
undur, þegar hann hefur tíma til.
Davíð Ben-Gurion fæddist ár-
ið 1886 í pólska bænum Plonsk,
sem þá tilheyrði rússneska keis-
araveldinu. Strax í æsku var
hann ákafur fylgismaður zion-
ismans og sósíalismans. Hann
fór 17 ára gamall til Istambul
í Tyrklandi til að lesa lög, svo
að hann mætti stunda lögfræði-
störf í Palestínu; en þegar hann
kom til „fyrirheitna landsins",
hætti hann við að gerast lög-
fræðingur, því að hann og vinir
hans sannfærðust um, að Gyð-
ingar yrðu sjálfir að gerast erf-
iðismenn.
I tíu ár vann hann að land-
búnaðarstörfum og skipulagði
verklýðsfélög. I fyrri heims-
styrjöld vísuðu Tyrkir honum
úr landi vegna samúðar hans
4*