Úrval - 01.12.1948, Síða 66
64
ÚRVAL
Clem. Það er allt of útbreidd
skoðun, að hjónabandið sé bót
margs konar andlegra og jafn-
vel líkamlegra meina hjá ungu
fólki.
Sem dæmi um líkamlegan
kvilla skulum við taka bólugraf-
ið hörund. Það er ákaflega út-
breidd skoðun, að ungar stúlkur
(og piltar raunar líka), sem eru
með útsteypt andlitið í bólum,
fái á skömmum tíma bót á meini
sínu, ef þær giftast. Og menn
þykjast hafa séð þess mörg
dæmi.
Sannleikurinn er hinsvegar sá,
að hörundsbólur gera einkum
vart við sig á kynþroskaárun-
um og árunum næst á eftir, en
batna að jafnaði sjálfkrafa eft-
ir nokkur ár. Ef bólugrafin
stúlka giftist rétt áður en kvilli
hennar hefur runnið náttúrlegt
skeið sitt á enda, er sú skýring
nærtæk, að hjónabandið hafi
læknað hann.
Ungir menn leita einnig stund-
um bóta á sjálfsbrestum með
því að kvænast. Mönnum, sem
eru drykkfeldir, daufgerðir eða
eiga erfitt með að einbeita sér,
svo að nokkuð sé nefnt, er oft
sagt, að þessir misbrestir muni
batna, ef þeir hafa einurð til
að ná sér í góða konu.
Mikil ógæfa hefur dunið yfir
þúsundir ungra kvenna — og
sumpart eiginmenn þeirra líka
— fyrir þá trú, að hjónabandið
sé töfralyf gegn hverskonar
misbrestum í fari manna.
Kona, sem hafði sorglega
reynslu af slíku hjónabandi,
sagði: ,,Ég áleit, að ég gæti
læknað manninn minn með
undramætti ástar minnar —
með því að gefa honum þrótt
til að sigrast á brestum sínum.“
En við höfum ótvíræða, vísinda-
lega vissu fyrir því, að djúp-
rættir misbrestir í persónuleika
læknast ekki við það eitt, að
tvær manneskjur ákveða að
bindast hvort öðru.
Sumir menn eru alls ekki
fallnir til að giftast. Gifting eyk-
ur venjulega á erfiðleika þeirra.
Tökum sem dæmi þá, er þjást
af einmanakennd.
I bæjum og sveitum, já, alls-
staðar, er einmana fólk, ungt
og gamalt, sem finnst það vera
til einskis nýtt og líf sitt tómt,
og sem þarfnast einhvers til að
blanda geði við og lifa með. En
það er til einmanakennd, sem
ekkert hjónaband getur læknað,
sjúkleg einmanakennd, sem ger-
ir þeim, er af henni þjást, ókleift
að lifa í náinni sambúð við aðra.