Úrval - 01.07.1954, Blaðsíða 31
SKURÐSJÚKLINGAR LAGÐIR I DVALA
29
reynt í Englandi, að vísu ekki í
jafnflókinni blöndu, en með
jafngóðum árangri, að því er
sagt er. Með notkun klórpróm-
azíns er hægt að lækka líkams-
hitann niður í 28°, án þess að
sjúklinginn saki. I þessum
gervidvala hefur tekizt að skera
upp sjúklinga, sem ekki myndu
hafa þolað uppskurð með venju-
legri aðferð.
Sem dæmi má nefna 76 ára
gamla konu, sem flutt var í
sjúkrahús vegna æxlis í mjöðm-
inni. Eftir að hún kom á spít-
alann varð hjartsláttur kommn-
ar svo óreglulegur, að ekki var
talið ráðlegt að skera hana upp
undir venjulegri svæfingu.
Henni hélt áfram að hraka og
var þá ákveðið að skera hana
upp í gerfidvala. Aðgerðin tókst
vel og batinn varð jafn og ör-
uggur.
Það hefur þegar verið upp-
götvað, að ekki er nauðsynlegt
að kæla líkamann, því að fyrir
áhrif klórprómazíns á þann
hluta heilans, sem stjórnar lík-
amshitanum, lækkar hann um
eina til tvær gráður, sem er
nægilegt til þess að draga veru-
lega úr súrefnisþörfinni.
Aðferð þessi er ekki enn talin
með öllu hættulaus og ekki talið
ráðlegt, á þessu stigi málsins, að
grípa til hennar nema þegar sér-
staklega stendur á. En í hönd-
um reyndra skurðlækna er von
til þess að hún verði fljótlega
endurbætt. Þess er einnig að
vænta, að nákvæm vísindaleg
rannsókn á náttúrlegum dvala
dýra géti orðið læknavísindun-
um að liði í þessu efni, en sára-
lítið er vitað um eðli hans. Að-
eins fáir lífeðlisfræðingar hafa
fengizt lítillega við rannsóknir
á náttúrlegum dvala, en rann-
sóknir á þessu fyrirbrigði gætu
án efa veitt merkilegar lífeðlis-
fræðilegar upplýsingar, sem
hefðu hagnýtt gildi fyrir lækna-
vísindin, að ekki sé talað um al-
mennt vísindalegt gildi þeirra.
o-o-o
I Eiffeltiirninum.
Brezka skáldið, málarinn og fagurkerinn William Morris var
i heimsókn í París. Meðan hann dvaldi þar, var hann nærri
öllum stundum uppi í Eiffelturninum, horðaði þar allar mál-
tíðir og sat þar við skriftir.
,,Þér hlýtur að finnast mikið til um turninn,11 sagði einn
kunningi hans, „úr þvi að þú getur varla slitið þig hurt frá
honum.“
„Mikið til um turninn!“ hrópaði Morris. „Ég er þar aðeins
af því að þaö er eini staðurinn í París þar sem þetta viður-
styggilega járngi'indarbákn blasir ekki við augum!“
— Pourquoi Pas.