Úrval - 01.07.1954, Page 113

Úrval - 01.07.1954, Page 113
X BLÍÐU OG STRÍÐU' llí að þrátta þetta lengur, ég fór því upp í bílinn og ók af stað. Þegar ég hafði lokið aðalerindi mínu í borginni, fór ég að svip- ast um eftir jólagjöfum. Þegar maður stendur í því stórræði að kaupa gjafir handa fólki á mismunandi aldri og af báðum kynjum, þá held ég að það sé aðeins ein aðferð sem dugir, en það er að leggja leið sína í stórt vöruhús. Þar sem hægt er að fá alla hluti keypta, allt frá leikföngum til yfir- frakka, og þar sem hver vöru- tegund er til sýnis í sérstakri deild. Undir kvöldið var ég búinn að kaupa allar gjafirnar nema handa sjálfum mér. Og ef ég átti að fá gjöf frá Margheritu, varð ég að velja hana sjálfur. Eg sat yfir kaffibolla og horfði á mannfjöldann á götunni, þeg- ar mér datt allt í einu í hug: „Hvað mundi Margherita hafa valið, ef hún hefði keypt eitt- hvað handa mér?“ Ég fór út úr kaffihúsinu, rölti eftir götunni og leit í búð- arglugga. En hve mig hafði langað í margt, þegar ég var barn! En okkur krökkunum voru ekki gefnar gjafir í þá daga. Satt að segja fékk ég enga gjöf fyrr en ég keypti hana sjálfur. Eg vissi að móður mína langaði til að gefa mér gjöf, en Jhún gat það bara ekki. Ég leit í glugga eftir glugga og reyndi að geta mér til hvað Margherita mundi gefa mér. Allt í einu vissi ég það. Vasa- útvarpið þarna! Ég fór inn í búðina og spurði hvað það kost- aði, og reyndi að gera mér í hugarlund hvernig svipurinn á Margheritu yrði, þegar hún heyrði verðið. Tækið var rán- dýrt, og það var sem ég heyrði Margheritu prútta við búðar- manninn. „Sögðuð þér fjörutíu þús- und?“ „Já, fjörutíu þúsund, fyrir ut- an söluskatt.“ „Allt í lagi“, mundi Marghe- rita segja. „Segjum þrjátíu þús- und, þá tek ég þaö.“ Ég sá þetta allt í anda. Þegar samningaumleitanirnar voru komnar á visst stig, mundi búð- armaðurinn segja með sérstök- um -hreim í röddinni: „Þrjátíu og fimm!“ Margheritu mundi skiljast að vonlaust væri að koma verðinu niður fyrir þrjátíu og fimm þús- und, og hún mundi taka upp budduna og borga. Ég fór út úr búðinni og reyndi að ímynda mér hvernig Margherita mundi tauta á heimleiðinni: „Ef karlhróinu mínu líkar ekki þessi gjöf, þá er honum ekki viö bjargandi.“ Eg nam staðar til þess að skoða í glugga þar sem stór askja með litlum plastkubbum var til sýnis; það var hægt að byggja fallegasta hús úr þeim. Margherita mundi skoða þá á sama hátt og segja við sjálfa sig:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.