Úrval - 01.03.1960, Blaðsíða 22
URVAL
VtJDtJ
þess sé gætt hversu auðveld-
lega dýrlingar rómversk ka-
þólsku kirkjunnar þægjast yfir-
leitt goðum og öndum annarra
trúarbragða. Sú virðist raunin
hafa á orðið hvar sem lent hafa
saman straumar kaþólskrar
kirkju og heiðindóms og eru
dæmin ærin — alla leið frá
Mexíkó til Indókína. — Annað
hefur orðið uppi á teningnum
með mótmælendatrúna. Með
henni og hinum fornu goðum
hafa sættir ekki tekizt á sama
hátt, enda skortir þar meðal-
göngu helgra manna.
Metraux segir að enginn á-
trúnaður blámanna hafi haldist
jafn vel og Vúdú, og skýrir það
með hnignun kaþólsku kirkj-
unnar á Haiti frá síðari hluta
17. aldar fram yfir 1860. Þá óx
vúdútrúin mjög á kostnað van-
máttugrar kirkju og festi ræt-
ur í huga fólksins. Enn þann
dag í dag er mikill meirihluti
Haitimanna vúdú-trúar, jafn-
framt því, sem þeir játa róm-
versk kaþólska trú.
Uppistaða þessa trúarblend-
ings er dansinn og mögnunin.
Mögnunin stuðlar að þvi að
koma einstaklingnum í samband
við andaheiminn. Með því að
nota dansinn til dáleiðsluáhrifa
kemst einstaklingurinn í snert-
ingu við hið yfimáttúrlega.
Andinn, sem nefnist loa, losar
hann við sálina. I dáleiðslunni
hlotnast honum útlit og fas loa.
Segja má að fas anda þessara
sé mjög svo mannlegt, þannig
að hinir dulmögnuðu liggja,
bölva, slást og svo fram eftir
götunum, allt eftir innræti hlut-
aðeigandi anda.
Metraux segir að tilgangur-
inn með þessari dulmögnun, sé
vafalaust fyrst og fremst sá,
að hefja vesalingana upp úr
dufti hversdagseymdarinnar.
Með þessum látum geti þeir
vakið á sér athygli, öðlast hlut-
deild í hinum yfirnáttúrlega
guðdómi, í ógn hans og virð-
ingu. Það er sem sagt ekki að-
eins trúarathöfnin, — heldur
trúin sjálf, sem á rætur sínar
í ólýsanlegri fátækt og eymd
bændalýðsins á Haiti.
Sefjun þessarar tegundar er
ekki einsdæmi í vúdútrú, en í
öðrum trúarbrögðum er hún
undantekningarlaust einkarétt-
ur prestanna. Á Haiti eiga þess
hins vegar allir jafnan kost, að
loa hlaupi í þá, enda verður
fjöldinn allur af þeim þeirrar
gæfu aðnjótandi.
Bók Alfred Metreaux er skrif-
uð á frönsku, en er til í enskri
þýðingu og heitir á því máli
Woodoo in Haiti.
Nærsýn kona kom í matvöruverzlun, og‘ benti nokkuð hikandi
á hlut, sem henni sýndist vera á búðarborðinu.
,,Er þetta giáðáostur ?“ spurði hún.
,,Nei, frú," sagði búðarmaður, „þetta er verzlunarstjórinn."
16