Úrval - 01.03.1960, Page 28

Úrval - 01.03.1960, Page 28
URVAL BARÁTTAN GEGN BARNSPARASÖTTINNI veikrahælis þar í borg. Þegar dr. Semmelweis var kominn í klefa sinn, varð honum ljóst, hvar hann var. Spennitreyjan ein gat þá yfirbugað hann. Enn átti þó barnsfararsótt- in eftir að koma við sögu, og í þetta skipti e. t. v. til góðs eins, úr því sem komið var. Hann hafði á sama hátt og vin- ur hans próf. Kolletschka feng- ið rispu í fingur við krufningu nokkru áður, og af völdum hennar andaðist hann 13. ágúst 1865, aðeins tæplega 47 ára gamall. Hinn 12. ágúst, daginn áður en dr. Semmelweis andaðist, notaði skurðlæknirinn Josef Lister í París karbolvatn sem smitefnadrepandi meðal við uppskurð á opnu beinbroti. Þetta reyndist gefa góða raun. Lister byggði þessar aðgerðir á fyrirlestrum Louis Pasteur, sem hafði þá þegar unnið mik- ið við rannsókn á orsök smit- andi sjúkdóma. Lister hlaut einnig andstöðu, en honum tókst þó með óyggjandi rökum að fullvissa fólk um gildi uppgötv- ana sinna, sem voru í fullkomnu samræmi við uppgötvanir dr. Semmelweis. Hefði dr. Semmel- weis lifað örfáum árum leng- ur, hefði hann séð starf sitt öðlast viðurkenningu. (Þýtt úr þýzku) )-------( Nokkur orð um abstrakt list. Jæja, nú get ég sagt ykkur dálítið, sem þið ekki vitið. Abstrakt- málarar og atómskáld eru sko alls ekki geggjuð, eins og þið hafið hingað til haldið. Þeir eru bara með of háan blóðþrýsting. Það er nefnilega búið að sanna þetta úti í heimi. Læknar í Þýzkalandi tóku heilan hóp af málurum til athugunar (ekki höfum við nú ennþá rekið þá til læknis; þýzka framtakssemin lætur ekki að sér hæða). Jæja, en það kom sumsé í ljós, að natúralistiskir listmálarar höfðu normal blóðþrýsting, en þeir, sem máluðu abstrakt voru með allt of háan blóðþrýsting. Og ekki nóg með það, þegar þeir höfðu fengið viðeigandi meðul og blóð- þrýstingurinn lækkaði, tóku þeir að mála natúralistiskt. Það gæti verið gaman að mæla hann Jónas Svafár . . . o o Hvaö Kiljan sagði .... Hafið þið heyrt, hvað Kiljan sagði um Óskalagaþátt sjúklinga? „Alveg er það dásamlegt, hvað músikalskt fólk er heilsuhraust, því verður bara ekki misdægurt . . .“ 22

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.