Úrval - 01.03.1960, Page 30
TJRVAL
ATLANTIS — SÖGN EÐA SANNINDI
Þrátt fyrir þetta eru engar
ótvíræðar sannanir fyrir hendi,
enda þó líkur séu, sem geri vís-
indunum fært að segja að At-
lantis hafi verið til í raun og
veru.
Svar við spumingunni: „Hef-
ur Atlantis verið til?“ er ekki
aðeins verkefni sagnfræðinga
og mannfræðinga, heldur líka
jarðfræðinga. Ef jarðfræðingar
lýstu yfir því, að í Atlantshafi,
milli hins gamla og nýja heims,
hafi aldrei verið né getað verið
meginland, slíkt að þar gætu
búið menn, þá þyrfti ekki leng-
ur að brjóta heilann um efnið.
Spurningin um það, hvort At-
Iantis hafi verið til eða ekki,
væri þá alls ekki fyrir hendi.
En þeir jarðfræðingar, sem
hafa rannsakað botnbyggingu
Atlantshafs milli Evrópu og
Ameríku, halda í aðalatriðum
fram um þetta og næstum ein-
róma:
Jú, það er mögulegt að At-
lantis, stórt eyland á þeim slóð-
um, sem nú eru Azoreyjar, hafi
verið til, og að þetta eyland
hafi sokkið í sæ eftir að menn
voru farnir að byggja jörðina.
Fræðimenn velta fyrir sér
hvernig á því standi, að jafn
fjarlægar þjóðir og Egyptar
hinir fornu og Assýríumenn
byrja tímatal sitt með sama ári.
Þetta upphaf tímatalsins er
hjá báðum þjóðum árið 11.542
fyrir upphaf tímatals þess, sem
nú er notað. Tímatal Maya-
kynstofnsins nær eitthvað svip-
að aftur í tímann. Væri ekki
hægt að komast eftir hvaða
tímasetning það er, sem hefur
skilið eftir sig spor í hugsana-
ferli svo sundurleitra þjóða?
Síðustu ísöld lauk í Evrópu
fyrir hérumbil tólf þúsund ár-
um. Rússneska vísindakonan J.
F. Hagemeister gerir ráð fyrir
því, að lok ísaldar hafi orsakazt
af því, að heitur sjór, Golf-
straumurinn, hafi brotizt inn í
hið norðlæga íshaf. Spuming-
unni um það, hvað hafi fram
að því hindrað Golfstrauminn,
svarar hún: Atlantis.
Enn ein tímaákvörðun er
kunn, sem fellur saman við
framansagt. Rússneski haffræð-
ingurinn Jermolajew rannsakaði
botnsýnishorn úr hinu norð-
læga íshafi, og með því að rann-
saka geislun mangans, fann
hann að sjór úr Atlantshafi
hefði brotizt inn í íshafið fyrir
hérum bil tólf þúsund árum.
Loks hafa amerískir vísinda-
menn, er þeir náðu sýnishorn-
um úr botni Atlantshafs og
rannsökuðu þau, víða fundið
þykkt lag af eldf jallaösku. Með
mælingum á geislaverkun sýndi
það sig, að öskulögin eru um
það bil tólf þúsund ára gömul.
Frekari úrlausn gátunnar um
Atlantis snýst fyrst og fremst
um byggingu botns Atlantshafs-
ins. Bezta sönnun þess að til
hafi verið menningarríki, sem
Atlantis hafi heitið, myndu vera
fornleifafundir, sem treystandi
væri. Komosomolskaja Prawda)
24