Úrval - 01.03.1960, Side 59

Úrval - 01.03.1960, Side 59
RÆKTUN SMÁTRJÁA URVALt pastursminnstar eru, skil eftir um það bil tólf plöntur í hverri pönnu. Með þessu móti fá plönt- urnar bæði meira rúm og loft til þroska. Þegar trjáplönturnar eru orðnar tólf mánaða er kominn tími til fyrstu gróðursetningar. Árstíminn fer eftir því, um hvaða plöntur er að ræða: barr- trjám á að planta í apríl þegar rætur þeirra hafa lifnað við á ný, en lauftrjám á að planta þegar komið er á þær brum. Til plöntunarinnar nota ég þriggja þumlunga leirpotta, sinn handa hverri plöntu, og set nú kork yfir afrennslisgatið, síðan lag af fínni, þveginni möl og loks raka mold upp í hálfan pott. Ég losa plönturnar allar í senn úr pönnunni, vel úr þær gróskumestu, greiði sundur ræt- ur þeirra, hverja frá annarri, set hverja um sig í sinn pott og fylli upp að rótunum og stofninum með rakri mold. Eft- ir tvær vikur hafa þær fest ræt- ur og þurfa þá ekki annarrar umönnunar með en reglulegrar vökvunar og stöku þvottar á blöðum. Við lok annars árs eru trén orðin að litlum skemmtilegum sýnishornum tegundar sinnar, og tími til kominn að hafa potta- skipti á ný og gera fyrstu ráð- stafanir til að hefta vöxtinn. Fyrst er hvert tré tekið úr sín- um potti og greitt úr rótunum. Rætur, sem eru rifnar, eiga að skerast hreinlega af; aðalstofn- rótina á að skera sundur um fjóra þumlunga frá jarðvegs- brún. Trjánum á síðan að planta í fimm þumlunga djúpa potta, hverju um sig, og verð- ur það samastaður trjánna framvegis. Fylgjast verður vandlega með lögun trjánna í vextinum. Á hverju sumri verður að klípa af þeim aðal vaxtarsprotann svo að hliðarsprotar þroskist og tréð breiði úr sér. Einnig verð- ur að fylgjast með vexti grein- anna, og er lögun lempuð til með því að nema burtu vöxt fyrir neðan og ofan. Stefna skyldi að láréttum vexti frem- ur en lóðréttum. Eftir því sem árin líða verða trén fallegri, stofnarnir gildna, og á hverju hausti breyta ör- smá lauf þeirra um lit og falla. Ég þarf að taka þau upp úr pottum sínum annað slagið og snyrta rætumar. Þá losa ég um það bil helming moldarinnar frá og stífi stærstu rætumar. Ef stofnrót hefur vaxið þarf að stífa hana vel. Segja má að rót- arvöxturinn sé yfirleitt skert- ur um þriðjung lengdar sinnar. Við barrtréin haga ég mér í að- alatriðum alveg eins, nema hvað ég bind um ræturnar vegna þess að þeim hættir til að ,,blæða“. Þegar trén eru tekin úr pottunum þarf ávallt að fylla þá með nýrri mold. Þótt rætum- ar séu stífðar þarf að halda þeim virkum. (The Listener) 5*

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.