Úrval - 01.03.1960, Page 83

Úrval - 01.03.1960, Page 83
ÆVISKEIÐIN SJÖ ÖRVAL búnir að senda eldflaug til tunglsins. Tækniafrek á borð við þessi eru að vísu miklu auð- unnari en fundur lífselexírsins, því í fyrri tilfellunum tveimur var vitað hvað með þurfti í aðalatriðum. Á hinn bóginn er alls ekki vitað hvað við á að éta til að stöðva ellihrörnun mannsins, og fyrsta verkefnið er að uppgötva hvað það er, sem með þarf. En á síðustu árum hefur verið stofnað til umfangs- mikilla rannsókna í mörgum löndum til þess að komast að því hvort unnt sé að hefta ell- ina, og ef svo er, þá með hvaða hætti. Ellihrumleikinn virðist vera annað og meira en áratuga sam- safn meiðsla, sem við hljótum í hnjaski lífsins: tilkoma hans er of jöfn og stígandi til þess að svo geti verið. Hann gæti átt rætur að rekja til sérstakra meiðsla. Þau gætu verið tvenns- konar, með tilliti til þess, að sumar frumur líkamans geta endurnýjast í hið óendanlega — til dæmis skinnfrumurnar —, en aðrar — heilafrumurnar — alls ekki. Ellihrumleikinn gæti stafað af sífelldum missi óbæt- anlegra fruma, ellegar af rým- andi gæðum þeirra fruma, sem endurnýja sig — með öðrum orðum, af vaxandi göllum í við- haldskerfinu. Helzta vonin um að takast megi að koma hafti á ellina hefur ávalt legið í þeim möguleika að hrömunin hefj- ist við einhverja eina megin- breytingu. Þegar hormónar voru uppgötvaðir væntu menn þess að með þeim yrði unnt að hefta hrumleikann. Sú von hefur brugðist í aðalatriðum, enda þótt hormónar komi að gagni til að tefja ellihrörnun á viss- um sviðum. Kannski byggist vonin um að okkur takist að hefta, eða að minnsta kosti tef ja hrörnunina, hver svo sem orsök hennar kann að vera, einna helzt á þeirri staðreynd, að hægt er að tefja ellihrörnun hjá rott- um með því að seinka þroska þeirra. Hægt er 'að halda van- nærðum rottum ungum og í fullu fjöri í tíma, sem sam- svarar heilli rottuævi, og ef þær eru síðan fóðraðar vel, stækka þær, ná fullum þroska og ná aldri, sem samtals jafn- ast á við tvöfaldan meðalaldur hjá venjulegum rottum. Geturn við lengt ævina? Hjá rottunum, að minnsta kosti, er ellihrumleikinn tengd- ur þroskaklukkunni. Hjá mann- inum er þessu ef til vill eins varið, en það er erfiðara um að segja hvort okkur er óhætt að fikta nokkuð við þá klukku. Með því að svelta rottuunga gerum við aðeins það, sem nátt- úran sjálf hefur leikið við manninn — við lengjum bernskuskeiðið. Það eru fleiri leiðir hugsanlegar til að tefja fyrir ellinni. Ef gallar í endur- nýjun fruma eiga þarna sök, er hugsanlegt að bót verði á ráð- 77

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.