Úrval - 01.03.1960, Síða 84
tJRVAL
ÆVISKEIÐIN SJÖ
in með lyfjum, sem vemda
frumurnar fyrir utanaðkomandi
skemmdum — til dæmis af
völdum geislunar.
Maðurinn er stöðugt að lengja
blómaskeið lífs síns með því
að fækka dauðsföllum á unga
aldri. En fram að þessu hefur
honum ekki tekizt að finna
neitt ráð til að lengja venju-
legan hámarksaldur. Hann er
enn um það bil átta tygir ára,
eins og þegar Biblían var skrif-
uð. Læknavísindin hafa áorkað
fremur litlu í þessu efni. Bil-
anirnar verða svo örar undir
lokin, að öldungur, sem hlýtur
aldurtila af einni þeirra, ber
venjulega í sér allmargar til
viðbótar, sem hver um sig hefði
nægt honum til bana ef hann
hefði lifað þá fyrstu af. Það er
þetta vandamál, sú þraut að
breyta allri stundaskránni og
seinka hnignuninni, sem geron-
tologían — ellihrumleikafræðin
— glímir nú við. Trú mín er
sú að takast muni að lengja
mannslífið verulega, en ég er
hræddur um að langt verði
þangað til.
Ráðning gátunnar, sem Sfinx-
in lagði fyrir Ödifus, var sú,
að maðurinn væri sú skepna,
sem gengi fyrst á fjórum fót-
um, síðan á tveimur, svo á
þremur — skríðandi, gangandi
og höktandi við staf. Eg hygg
að við getum sagt með sanni,
að hann sé skepna, sem fæð-
ist mjög ósjálfbjarga og
bernskuskeið hans og ómaga sé
mjög langt. Hann sýnir kyn-
ferðislegar tilhneigingar í
bernsku, og þær hafa þýðing-
armiklu hlutverki að gegna
varðandi andlegan þroska, hann
lifir félagslífi, sem grundvall-
ast á fjölskyldutengslum, og
hefur beitt skynrænni hugsun
sér til verndar svo að hann geti
liíað til gamals aldurs. Með til-
liti til þess, að sagan um Ödifus
varpar ljósi á hina sálrænu hlið
þessarar þróunar, finnst mér
ástæða til að ætla að forn-
Grikkir hafi rennt furðu ljósan
grun í eðli mannsins, með hlið-
sjón af uppgötvunum síðari
tíma líffræðinga á þessu sviði.
(The Listener)
)-------(
Ungur klerkur fór til höfuðstaðarins, og ætlaði að kaupa þar
skilti með áletrun og festa síðan upp í kirkju sinni. Hann
gleymdi að taka með sér bæði áletrunina og stærð skiltisins,
og sendi konu sinni símskeyti og bað hana að senda sér skeyti
um hvorttveggja. Þegar skeytið kom, leizt símastúlkunni ekki
á blikuna, en skeytið var þannig:
„Barn er oss fætt lengd 6 fet breidd 2 fet.“
7*