Úrval - 01.03.1960, Side 88

Úrval - 01.03.1960, Side 88
tJRVAL I FJÖRBROTUM hafði engan lykil að því, og staf- róf ið var að minnsta kosti fimm- tíu og sex merki, og orðin þýddu — hvað? Hljóð? Hugsanir? Augnaráð eða tOht, hreyfingar, eitthvað, sem mátti tákna með merkjum, bókstöfum, sem voru ólíkir nokkrum öðrum, sem menn höfðu notað, að því er mér bezt var kunnugt. Ég varð þess áskynja við verk mitt, að enginn leiðangurs- manna svaf. Eins og ég gátu þeir varla beðið morguns. Að líkindum mundi nýr dagur að- eins valda okkur beizkum von- brigðum —þeim, að sjá hinn ghtrandi hlut innan við þúsund metra frá okkur, en geta ekki komizt að honum nema ef til vill 1 þyrilvængju. Undir morgun .hrökk ég við þegar hendi var drepið á öxl mér. Það var Melinda, og færði hún mér kaffi, sykur og dósa- mjólk, og ég blessaði hana fyrir. Hún leit á stafla af skrifuðum blöðum á borðinu og spurði: ,,Hefur þér gengið nokkuð? Nokkur ráðning?“ ,,Ég er hræddur um að ég þurfi á Rosettu-steini að halda“, sagði ég og hristi höfuðið. „Rosettu-steinn ? Já, þessi, sem varð til þess að ráðnar voru helgirúnimar egypzku, af því að á honum vom áletranir bæði á grísku og egypzku? — Jæja, ég ætla ekki að trufla þig, en gam- an þætti mér að vita hverjum tökum þú tekur þetta viðfangs- efni“. „Það þætti mér líka gaman! Ef til vih er þetta ekki mál. Ef til vih töluðu þeir saman með því, að breyta um lit á fingr- um sínum, og þessi merki tákna aðeins litasamböndin“. Mér til nokkurrar undrunar saup Melinda hveljur. „Þú ert dásamlegur! Hvernig fór þér að detta þetta í hug?“ „Æ, farðu nú“, sagði ég, og þóttist vera vinalegur, en aftur varð ég hissa því að hún sýnd- ist móðgast. Hégómaskapur kvenna . .. hugsaði ég. Þegar ljósið á lampa mínum tók að fölna fyrir dagsbirtunni, reis ég á fætur og gekk út þang- að, sem ég gat séð hina glitr- andi málmófreskju. Þar voru aðrir leiðangursmenn fyrir, en enginn var þar hinna innfæddu fylgdarmanna. Þegar ég átti skammt ófarið til félaga minna, fældi ég upp úr lágrunni eitt hinna mörgu nagdýra, sem eiga heimkynni á þessum slóðum. Kvikindið æddi í skelfingu undan mér, og á flóttanum kom dýrið nálægt hin- um undarlegu jurtum. Þá spyrnti það skyndilega við fót- um, nam staðar, sneri við, tísti vesaldarlega, og hljóp til baka á móti mér, eins og af mér staf- aði minni hætta og ógn en blóm- unum. Ég heyrði það hlaupa ýlfrandi af skelfingu inn í runn- ana. Ég sagði frá þessu við morg- unverðinn, en Barkley, náttúru- fræðingur, virtist áhugalaus. 82

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.