Úrval - 01.07.1966, Síða 6
4
ÚRVAL
um en þeim, sem vinna líkamlega
vinnu. í öðru lagi er ýmislegt sem
bendir til þess, að sykurinn sé sá
þáttur fæðunnar, sem sökina ber,
en alls ekki fitan.
2. Ef mjólk og rjómi eru fitandi,
hvers vegna eru þau þá ævin-
lega fastur liður í megrunar-
fæði?
Hver sá, sem ber upp slíka spurn-
ingu, skilur ekki fyllilega að hverju
það stafar, að fólk fitnar, og hvað
það ætti að gera til þess að megra
sig aftur. Enginn einstök fæðu-
tegund veldur því að fólk fitnar.
Til þess þarf óhóflegt fæðumagn
af öllum tegundum. Þó má segja
ofurlítið meira en þetta. Feitt fólk
neytir að jafnaði of mikils af þeim
fæðutegundum, sem innihalda kol-
vetni, það er að segja sterkju og
sykur. Og feitt fólk léttist óhjá-
kvæmilega, þegar það neytir fæðu,
sem inniheldur lítið af kolvetnum.
Vitanlega má ekki hugsa um það
eitt, að fæðið grenni fólkið og haldi
því grönnu. Fæðið verður einnig,
og ekki síður, að viðhalda hreysti
og heilbrigði líkamans. Það hefur
því jafn mikla þýðingu hvað of
feitt fólk borðar eins og hitt, hvað
það ekki borðar. Rétt er að geta þess
hér, að mjólk í megrunarfæði er
ein bezta leiðin til þess að tryggja,
að í fæðinu séu öll þau næringarefni,
sem nauðsynleg eru til að viðhalda
heilsu og vellíðan.
3. Er það rétt að í smjöri sé vatn?
Já, og auðséð er hvers vegna,
þegar hugsað er um, hvernig smjör
er búið til. Eins og allir vita eru
örlitlir fitudropar blandaðir saman
við allan hinn vatnsborna hluta
mj ólkurinnar, þ.e.a.s. undanrenn-
unnar, og mynda ásamt henni svo-
nefnda emulsio (blöndu, en ekki
upplausn). Þessir smádropar leita
upp á yfirborðið og setjast smám
saman ofan á mjólkina sem rjómi,
og fyrir þessum aðskilnaði rjóma og
undanrennu má flýta með því að
skilja mjólkina, eins og það er kall-
að, í miðflóttaaflsvél eða skilvindu.
I rjómanum er fitan enn í smá-
dropum, blönduðum nokkru af
undanrennu, en miklu minna og því
minna sem betur er skilið og þeim
mun þykkari verður rjóminn.
Sé rjóminn nú strokkaður, renna
fitudroparnir saman í smá kúlur og
köggla. Mestur hluti vatnsins er
nú kominn út úr fitunni, en samt
er enn í henni ofurlítið af vatni
í örsmáum dropum. Fitukögglarnir
ásamt þessum örsmáu vatnsdropum,
sem þeir eru blandaðir, mynda
þannig smjörið. Það má segja, að
þegar smjör er búið til, sé blönd-
uninni snúið við. Rjóminn er vatns-
blanda með fitudropum í en smjör-
ið er fita með vatnsdropum í. An
þessara vatnsdropa væri smjörið
aðeins vatnslaus fita, sem Indverj-
ar nefna „ghee“, og væri bæði að
áferð og bragði álík smjöri og ó-
lystugri.
4. Hvers vegna þarf að pasteur-
isera (þ.e. gerilsneyða án þess
að suða komi upp) mjólk?
Mjólk er afbragðs næring, ekki
aðeins fyrir menn, heldur einnig
fyrir sæg af margskonar gerlum.
Sumar gerlategundir, sem aukast
og margfaldast í mjólkinni, geta
verið sjúkdómsvaldar, líkt og þær
tegundir, sem valda berklum,