Úrval - 01.07.1966, Síða 52

Úrval - 01.07.1966, Síða 52
50 ÚRVAL on monofilamenti“ (einföldum, ó- snúnum boronþræði) til notkunar sem byggingarefni með alveg sér- staka eiginleika. Brýr úr boroni. Bandaríkjamenn geta hlakkað til þess tíma, þegar farið verður að nota boron til ýmislegra hluta í hinu borgaralega lífi. Og það virð- ist ekki þurfa að líða á löngu, þang- að til sumt af þessu verður að veru- leika. Brýr úr borontrefjablöndu gætu til dæmis spannað tvisvar sinnum lengra brúarhaf en mögulegt hefur reynzt, hvað brýr úr byggingarstáli snertir. Nýja Verrazenobrúin í New Yorkborg er nú lengst brú heims- ins. Hún er ekkert smásmíði. Hún er hvorki meira né minna en 4.260 fet á lengd. Það þurfti 160.000 tonn af byggingarstáli í hana. Hefði hún verið byggð úr borontrefjablöndu, hefði brúarhafið getað verið tvisvar sinnum lengra, og þyngd boronsins hefði samt aðeins verið 93.000 tonn. Slík brú úr boroni yrði alveg eins örugg og væri hún úr stáli, og um hana gæti því orðið alveg eins mik- il umferð og nú er um Verrazano- brúna. Hæsta bygging í heimi er Empire State Building í New Yorkborg, eins og flest skólabörn vita. Hæð hennar er 1.472 fet frá gangstétt upp til enda sj ón varpslof tnetsstangarinnar á þaki hennar. Þegar skólabörn nú- tímans verða orðin fullorðin, verð- ur kannske orðið unnt að byggja fimm sinnum hærri skýjakljúfa og nota borontrefjablöndu sem bygg- ingarefni í þá. Samgöngur á landi. Það er ekki óeðlilegt að vænta þess, að borontrefjablanda muni einnig hafa miklu hlutverki að gegna, hvað snertir framfarir í sam- göngum á landi og nýjungar í þeim efnum. Nú þegar eru verkfræðingar farnir að tala í fullri alvöru um framleiðslu loftpúðajárnbrautar- lesta, sem mundu æða áfram með 300 mílna hraða á klukkustund rétt uppi yfir venjulegum járnbrautar- teinum. Samþjappað loft mundi halda lestunum á lofti uppi yfir teinunum. Auðvitað yrði þyngd lest- anna töluvert vandamál í þessu sam- bandi, og hingað til hefur það ver- ið álitið, að alúmín mundi reynast heppilegast byggingarefni fyrir framleiðslu slíkra lesta. En yrðu þær í þess stað smíðaðar úr boron- trefjablöndu, þá þyrfti ekki nema helming lyftikarftsins miðað við al- úmín. og þannig mundi reynast unnt að minnka orkukostnaðinn töluvert. Loftpúðaskip eru þegar í notkun á vissum leiðum og önnur í smíðum. Því er svo farið með þau eins og flugvélar og loftpúðalestir, að það eru takmörk fyrir því, hve marga farþega eða hve mikinn flutning þau geta tekið. Því léttara sem loftpúðaskipið sjálft yrði, því fleiri farþega eða meiri flutning gæti það tekið. Ef boron yrði notað við smíði þess- ara loftpúðaskipa, mundi reynast unnt að smíða skip, sem yrðu 40% léttari en væru þau smíðuð úr öðru efni. Á þjóðvegunum. Að öllum líkindum mun boron
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.