Úrval - 01.07.1966, Page 117

Úrval - 01.07.1966, Page 117
RANNSÓKNIR í LÆKNISFRÆÐI izt mjög lítill vottur um æðakölkun í háöldruðu fólki. Fyrir 15 árum fóru vísindamenn frá Ríkisstofnuninni fyrir hjarta- sjúkdóma (National Heart Institute) til Framhinghamborgar í Massa- chusetts og fengu þar yfir 5000 sjálfboðaliða til rannsóknar. Hjá engum þessara sjálfboðaliða fund- ust nein merki hjartveiki í byrjun rannsóknarinnar. Síðan hefur á tveggja ára fresti farið fram ná- kvæm læknisrannsókn á hverjum einstökum þeirra, ásamt allskonar prófum í rannsóknarstofu. Vísinda- menn safna upplýsingum um dag- legar venjur allra sjálfboðaliðanna. A þessum 15 árum hafa meira en 250 þeirra fengið hjartveikisköst, og læknar hafa rannsakað þá og fylgzt með þeim mjög vandlega. Þeir komust að raun um, að það eru fjórum sinnum meiri líkur til að maður á sextugsaldri fái hjart- veikiskast en maður á fertugsaldri. Það sýnir að hættan eykst með aldrinum. Manni með háan blóð- þrýsting er fjórum sinnum hættara við hjartveiki en manni með eðli- legan blóðþrýsting. Þeim sem reyk- ir vindlinga er helmingi hættara en þeim, sem ekki reykir. Of feitu fólki, fólki með vissa óreglu í hjarta- riti, fólki með of lítið lungnarými og fólki með viss önnur einkenni er hættara en öðrum. Mótsagnakenndastar eru þær nið- urstöður, sem menn hafa komizt að um visst efni, hvítt og mjúkt, sem nefnist cholesterol. Það finnst í blóði sérhvers manns og er nauð- synlegt fyrir lífið, því að það er eitt grundvallarefnið í byggingu 115 frumanna. En það, ásamt öðrum fitukenndum efnum, reynist vera eitt aðalefnið í æðaþykkildunum. Og óeðlilega mikið magn af fitu- efnum ásamt cholesteroli í blóði, virðist vera samfara hjartveikis- köstum. Er aukið cholesterolmagn í blóði orsök hjartveiki? Eða er það að- eins önnur afleiðing af sömu or- sök. Skoðanir eru mjög skiptar um þetta atriði. En ein staðreynd stend- ur óhögguð: með fæðinu má ráða cholesterolmagninu í blóðinu að vissu marki. Fæði, sem er auðugt af cholesteroli og dýrafitu (mettuð- um fitusýrum), rjómi, smjör, feitt kjöt, egg, ostur og steiktur matur, eykur yfirleitt cholesterolmagnið. Ef menn forðast þessar fæðutegundir og nota jurtafeiti (ómettaðar fitu- sýrur) í stað dýrafitu, minnkar chol- esterolmagnið í blóðinu. En nægir slíkt fæði til þess að koma í veg fyrir kransæðastíflu? Vísindamenn geta framleitt æða- kölkun í dýrum, sem aldrei fá hana við sínar náttúrlegu aðstæður, með því að gefa þeim fóður, sem inni- heldur mikið magn að cholesteroli og fitu, með öðrum orðum, sams konar fæði og menn yfirleitt borða. Bantunegrar í Suður-Afríku, sem neyta lítillar dýrafitu, fá miklu sjaldnar hjartveiki en hvítir inn- flytjendur, sem borða mikið af henni. f Japan, þar sem menn fá aðeins 10% af hitaeiningum (calor- ium) sínum úr fitu í fæðunni (fcn í Bandaríkjunum fá menn 40%) er hjartveiki fjórum sinnum sjaldgæf- ari en í Bandaríkjunum. Þegar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.