Úrval - 01.08.1968, Side 75
HÆTTULEG SJOFERÐ
73
veg lífsnauðsynlegar fyrir Róma-
borg og veldi hennar. Á dögum
Nerós voru um 200.000 Rómverjar
á opinberu framfæri og fékk hver
þeirra 6—7 skeppur af hveiti mán-
aðarlega. Það virðist sem kornskip-
in hafi verið í einkaeign, en samt
virðast þau hafa verið undir stjórn
og eftirliti ríkisins. Og keisaraleg-
ur embættismaður á borð við Júlíus
var þannig æðri skipstjóra að tign
og völdum.
Við vitum, hvernig þessi róm-
versku skip á 1. öld e.Kr. litu út.
Af þeim eru til nokkrar upphleypt-
ar lágmyndir á grafhvelfingum.
Rómverskt skip frá því um 250 e.Kr.
hefur verið dregið upp úr Thamesá
nálægt Lundúnum nú á vorum
dögum. Og slík skip munu hafa
verið næstum nákvæmlega eins og
skip þau, sem notuð voru á 1. öld,
vegna þess að það urðu engar raun-
verulegar framfarir í skipabygg-
ingum öldum saman á þeim tímum.
Skipin voru frá 80—125 fet á
lengd. Skýrt er frá skipi einu, sem
á að hafa verið 95 fet á lengd og
gat borið 250 tonn. Þilfarsbitarnir
voru 20—25 fet á lengd. Hafnir voru
grunnar á þeim tímum, og því var
ristudýpt lítil, allt frá 4 fetum upp
í aðeins 8 fet. Skipin voru yfirleitt
tvímöstruð og með ráseglum og
risastóru stýri, sem líktist helzt
ár. Stýrin voru reyndar tvö, sitt
hvorum megin við hinn háa skut.
Stórseglið og framseglið voru
dregin upp á við að ránum með
kerfi kaðla, sem brugðið var í
gegnum hringi, sem saumaðir voru
við segldúkinn. Er þar um svip-
aðan útbúnað að ræða og notaður
var við að draga upp leikhústíöld
hér áður fyrr.
Það er mjög.líklegt, að Páll post-
uli hafi einmitt sjálfur hjálpað til
að gera slík segl. Hann var tjald-
gerðarmaður að atvinnu, en þeir
voru oft einnig seglsaumarar. Álit-
ið er, að Páll hafi einmitt unnið
fyrir fyrirtæki, sem sá um að vista
skip og sjá þeim fyrir öllum bún-
aði, þau árin er hann dvaldi í
Korinþuborg, en þar lágu skip frá
ýmsum þjóðum að vetrarlagi og
voru síðan vistuð og búin út á ann-
an hátt á vorin, skömmu áður en
þau lögðu upp frá borginni, þar
sem þau höfðu haft vetu.rsetu. Páll
hefur því verið vel kunnugur segl-
um og seglabúnaði hvers konar.
Kaupskip þeirra tíma gátu
auðveldlega siglt undan vindi, en
þau gátu ekki siglt upp í vindinn
nema nokkrar gráður, ef þau gátu
það þá nokkuð, og þarna finnst að
nokkru leyti skýringin á erfiðleik-
unum við þessa sjóferð Páls.
Skipið, sem bar Pál yfir Miðjarð-
arhafið, hafði 276 menn innan-
borðs samkvæmt flestum handrit-
um að Postulasögunni, þótt þeir
séu aðeins skráðir 76 í handriti
einu, sem til er í Vatíkaninu.
En hvort sem tala þeirra hefur
verið 276 eða 76 ,hljóta flestir þeirra
að hafa verið fangar og venjulegir
farþegar ásamt þrælum sínum.
Þessi tala er að vísu há, en þó ekki
óhæfilega. Josephus minnist á skip,
sem flutti 600 farþega, og sagn-
fræðingurinn Pliny minnist á ann-
að, sem flutti hvorki meira né
minna en 1200 farþega. f sjóferð-
um þeirra daga sá hver farþegi sér