Úrval - 01.11.1970, Blaðsíða 22
20
URVAL
bókmenntalegra ráðlegginga. Samt
sem áður heillaðist hún af efninu
sem unnusti hennar hafði safnað
og gert úr ævisögu hollenzka list-
málarans Vincent van Gogh. Hann
kallaði bókina „Lust for Life“ (Lífs-
þorsti í íslenzkri þýðingu) og henni
hafði þegar verið hafnað af 17 út-
gefendum.
En ungfrú Factor gekk að lestr-
inum af mikilli atorku. Hún las
mánuðum saman, strikaði út og lag-
færði textann og árið 1934 giftist
hún Stone og rétt um sama leyti
kom „Lífsþorsti" út og rauk beina
leið upp í efsta sæti á sölulistanum.
Á einni nóttu var þessi óþekkti
leikritahöfundur orðinn heimsfræg-
ur höfundur sagnfræðilegra skáld-
sagna. Sagan um Vincent von Gogh
varð einhver vinsælasta bók, sem
út hefur komið í Bandaríkjunum
og útkoma hennar markaði tíma-
mót í lífi höfundarins. Og allar síð-
ari bækur hans hefur kona hans
yfirfarið og lagfært.
Irving Stone er ekki einungis
mikill listamaður, starfsþrek hans
er einnig með eindæmum og venju-
lega vinnur hann fullan 8 tíma
vinnudag á skrifstofu sinni en þar
að auki krefjast bækur hans jafnr-
ar og stöðugrar vinnu. Venjulega
tekur það hann þrjú ár að skrifa
fyrsta uppkastið og þá er eftir árs-
vinna við að lagfæra og umskrifa.
Kona hans ber honum það orð að
hann sé mesti vinnuvíkingur, sem
hún hafi komizt í kynni við og að
hann reki sjálfan sig áfram af meiri
hörku en nokkrum atvinnurekanda
dytti í hug að nota á verkafólk sitt.
Bækurnar eru það mikilsverðasta í
lífi hans — hann hefur engan áhuga
á að skrifa greinar eða smásögur
— einungis bsekur.
Sem stendur vinnur Stone að bók
um austurríska sálfræðinginn Sig-
mund Freud, ætlunin er að henni
verði lokið á þessu ári og þótt hann
sé kominn hátt á sjötugsaldur er
hann búinn að gera áætlun og frum-
drög að níu öðrum bókum.
Mikið af þeirri frægð, sem Stone
hefur aflað sér um dagana á hann
að þakka hinni óþrjótandi forvitni
sinni. Hann segir að þekkingarleit-
in sé sér heilög skylda og segist trúa
því að hægt sé að finna allt. Finn-
ist ekki það sem leitað er að í
fyrsta, fimmta eða sextugasta
skipti, segir Stone, er það einfald-
lega vegna þess að hugmyndin hef-
ur ekki verið nógu góð.
Þegar hann var að skrifa „The
Agony and the Ecstasy" um ævi
ítalska meistarans Michelangelos,
fór hann til ítalíu og dvaldi þar í
rúmlega tvö ár og til þess að svala
ást sinni á smáatriðum, tók hann
sér hamar og meitil í hönd og fór
að hjakka í marmara. Sjálfur seg-
ir hann í gamni að lærimeistari sinn
hafi fullyrt að hann hefði mikla
möguleika til að verða versti mynd-
höggvari, sem Flórens hafi nokkru
sinni ungað út. En bókin kom út
árið 1961 og seldist næstu tvö árin
í 7 milljón eintökum og selst vel
enn þann dag í dag.
Þrátt fyrir að Stone leggi megin-
áherzlu á sögulegar ævisögur, hef-
ur hann líka skrifað venjulegar
ævisögur og hreinar skáldsögur.
Nokkrar af bókum hans hafa einn-
ig verið kvikmyndaðar.