Goðasteinn - 01.09.1973, Page 22

Goðasteinn - 01.09.1973, Page 22
og nokkra háseta hans, en einnig voru þar andlit, sem hann bar ekki kennsl á. Hann ákvað að rjúfa ekki þögnina, reið léttan leiðar sinnar og varð feginn, er hann hitti menn í Steinum. Var honum þá nokkuð brugðið. Ekki sagði hann að sinni frá sýn sinni. Hann reri til vertíðarloka hjá Erlendi, og varð þeim ekkert að meini. Síðar sagði hann, að atburðurinn við Steinahelli hefði verið í hug sér hvern dag, áður en ýtt var á flot. Hann fékk skiprúm hjá öðrum Austurfjailaformanni fyrir næstu vertíð. - - - Þorgils var í Austurfjallasandi, þegar dregið var út þar í byrj- un vetrarvertíðar 1832. Margt manna var þar saman komið. Við skip Erlends í Svaðbæli sá Þorgils sömu menn og árið áður við Steinahelli. Honum brá við og varð hugsað til hins fornkveðna: „Dregur til þess, er verða vill“.“ - Og það fór svo, að á þeirri vertíð fórst skip Erlends í lendingu með allri áhöfn. Manndauði. - Slysfarir. Þau Rauðnefsstaðahjón fóru ekki varhluta af ýmsu andstreymi um ævina. Til viðbótar ungbarnadauða, sem algengur var á þeirri tíð, misstu þau uppkominn son. Dóttir þeirra og maður hennar dóu frá ungum börnum með fárra vikna millibili úr hatrammri sótt, og ein dótturdóttirin á 3ja ári, sem bar Þuríðar-nafn, fylgdi foreldrum sínum í gröfina. Önnur dóttir þeirra Rauðnefsstaða- hjóna, mesta efnisstúlka á bezta aldri, andaðist í sama faraldri. Og loks slcal það talið, að tveir (sumir segja þrír) piltar af heimili þeirra fórust voveiflega. Hefur Björn Guðmundsson, sem fæddur er og uppalinn á Rauðnefsstöðum og bjó þar lengi (1910-47), síðastur ábúenda, skrifað um þá atburði í Lesbók Morgunblaðs- ins 1936 (XI. árg., bls. 86. Segist honum svo frá: „Hinn 10. nóvember 1843 sendi Þorgils tvo pilta að leita að sauðum, sem haldið var, að væru í svonefndu Valagili eða þar nálægt. Fóru þeir snemma um morguninn eða í dimmu, og hafði verið dálítill snjór og hæg drífa. En piltarnir komu ekki aftur. Var því daginn eftir farið að leita þeirra og þá í Valagili, en þeir fundust þar ekki, og liðu svo nokkrir dagar. Hinsvegar hafði komið heim hundur, er með þeim var, og hafði hann viljað fara í aðra átt, er farið var að 20 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.