Goðasteinn - 01.09.1973, Blaðsíða 79

Goðasteinn - 01.09.1973, Blaðsíða 79
lægum sveitum. Næsta vetur var hann svo ráðinn að Mundakoti á Eyrarbakka til ýmislegra snúninga. Eyrarbakki var þá, eins og kunnugt er, höfuðstaður Suðurlands og þangað sótt til verzlunar af Suðurlandsundirlendi og úr Skaftafellssýslum. Þar hefur því verið margt að sjá og læra fyrir athugulan og áhugasaman ungl- ing. Næst var ýtt frá landi og haldið út í Vestmannaeyjar, þar sem Guðjón reri tvær vertíðir hjá Sigurði hreppstjóra, sem al- kunnur var að dugnaði og harðfengi. Þá var hann aðra tvo vetur sjómaður í Nesjum í Hvalsnessókn hjá Guðmundi Guðmundssyni, sem talinn var mikill sjósóknari og góður formaður, einkum var hann talinn góður stjórnari í vondum sjó og djarfur. Þó að Guðjón stundaði sjó, vertíð eftir vertíð í nokkur ár, þá hefur það að líkindum ekki verið honum sérlega hugleikið starf Sjóveiki bagaði hann nokkuð og auk þess kallaði moldin og átt- hagarnir alla tíð. Áður en því kalli var hlýtt, réði hann sig þó til vitavarðarstarfa til Jóns Gunnlaugssonar, sem þá var vitavörð- ur á Reykjanesi og gætti Guðjón þar vitans ásamt Tómasi Snorra- syni frá Járngerðarstöðum í Grindavík. Við vitann vann hann í sjö vetur, síðari árin hjá Jóni Helgasyni, sem síðast bjó að Stað í Grindavík. Aldamótaárið 1900 hóf Guðjón svo búskap í Tungu með Odd- hildi systur sinni, en þá var móðir þeirra önduð sem fyrr segir og faðir þeirra brá þá búi, enda mun honum hafa verið ljúft að heimta soninn heim til þess að taka við staðfestu og áhöfn. Með Oddhildi systur sinni bjó Guðjón til ársins 1907, en það ár gekk hann að eiga heitmey sína, Ingilaugu Teitsdóttur frá Grjótá, en þar bjuggu foreldrar hennar, Teitur Ólafsson og Sigurlaug Sveins- dóttir. Þau Guðjón og Ingilaug bjuggu svo í Tungu óslitið til far- daga 1942, er þau fengu jörð og bú í hendur syni sínum og tengdadóttur, sem síðan hafa búið þar til þessa dags. Börn Guð- jóns og Ingilaugar eru fjögur, talin í aldursröð: Guðrún, bústýra í Þorlákshöfn, Sigurlaug, gift Guðmundi bónda Guðnasyni í Fögruhlíð, Oddgeir, bóndi og hreppstjóri í Tungu, giftur Guðfinnu Ólafsdóttur, ljósmóður frá Syðra-Velli í Flóa og Þórunn, gift Kristni Jónassyni, raffræðingi á Eyrarbakka. Snemma hneigðist hugur Guðjóns til smíða og mátti segja að Goðasteinn 77
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.