Goðasteinn - 01.09.1973, Qupperneq 40
annir byrjuðu. Mcnn bundu part af sauðarbjór á hægra hnéð á
sér og létu það hvíla á jörðinni en stóðu á vinstra fæti krcpptum
og þokuðu sér svo áfram jafnóðum og þeir ristu upp torfuna.
Torfurnar voru því sem næst 14 fet á lengd og þrjú og hálft á
breidd. Svo var torfan hringuð upp úr flaginu og bylt á röð, og
þegar sigið var mesta vatnið úr þeim, báru tveir menn það á
handbörum á þurrkvöll. Stundum var það flutt á hestum, ein
torfa lögð á bak hestinum, og var fullþungt. fyrir tvo menn að
vefja hana upp á hestbakið og hestinn að bera hana. Torfvinna
þessi var hin versta og óþokkalegasta vinna, sem menn gerðu,
og hið lakasta við það var, að verkið var óþarft, því það hefði
mátt verja hey fyrir regni og vindi án þess að þekja það með
torfi og ganga frá því í heygarði, eins og gert er í Ameríku.
KOLAGJÖRÐ
Skóglendur áttu sumir bændur, sem bjuggu í miðri sveit. Þar
óx þetta stórgjörfa hrís, sem ég hefi áður nefnt. Réttara mun þó
vera að kalla það krækluskóg, og hefir það óefað verið standandi
slcógur í fornöld.
Áður en heyannir byrjuðu, sendu bændur vinnumenn sína til
kolagjörðar og fóru stundum sjálfir með og voru í burtu þetta þrjá
sólarhringa. Tímalengdin, auðvitað, var eftir því, hvað margir
menn voru sendir. Stundum var ekki sendur nema einn maður.
Unnið var jafnt nótt sem dag, aðeins sofið, þegar svefninn sigraði.
Skógurinn var rifinn upp, ofurlítið brúkaðar litlar handaxir til
að höggya á ræturnar sér til léttist. Svo þegar búið var að rífa
upp stóra kesti, var viðurinn aflimaður. Menn sátu við það, brúk-
uðu fyrir fjalhögg trjáviðarrót af rekavið utan af söndum. Líka
aflimuðu mcnn með verkfærum, sem kölluð voru sigð, öðru nafni
sniðill. Þau voru ekki ólík hrísljáum, sem notaðir eru í Ameríku.
Með því verkfæri gátu menn aflimað standandi. Þegar búið var
af aflima, var kurlað. Við það sátu menn, lögðu lurkinn á fjal-
höggið og hjuggu sundur í smáhluta, sem kölluðust kurl, og vildu
þau nú stundum hrökkva víðsvegar og óvíst, að þau kæmust öll
til skila, þegar farið var að brenna þau, og er þar af komið mál-
tækið: „Sjaldan koma öll kurl til grafar“, og í annarri merking:
38
Goðasteir.n