Goðasteinn - 01.09.1973, Síða 66
Ég hefi áður minnzt á söguna, sem lengi var uppi um Hjalta-
staðadrauginn, og í sambandi þar við minntist ég á draugagang,
sem skeði á Bárðarstöðum í Loðmundarfirði nær miðri síðastlið-
inni öld. En þar var ekki alveg rétt farið með söguna. En síðan
hefur mér verið sögð hún greinilega af gömlum, merkum manni,
scm man viðburðinn, og er sonur manns þess, sem uppgötvaði,
hver falsdraugurinn var.
SAGAN UM BÁRÐARSTAÐA DRAUGINN
Það var seinnipart vetrar, vindhvinur mikill í fjöllunum kring-
um Loðmundarfjörðinn (og) þykk snjódyngja lá yfir allt. Frost
var talsvert og snjórenningur til muna, svo menn og skepnur
hnipruðu sig í húsum inni. Það ýldi og vældi eitthvað ömurlega
í skjágluggunum á Bárðarstöðum, sem er innsti bær í Loðmundar-
firði vestan megin. Það heyrðist þrusk eitthvert fyrir utan bað-
stofuvegginn, og það skoraði svo leiðinlega í cinni kúnni undir
pallinum. Sagt var af einhverjum: ,,Það hlýtur einhver að koma
hér á morgun og það ekki af betri sortinni“. „Tæplega í nótt, í
þessu veðri“, var svarað. Ögmundur Jónsson hét bóndi, sem bjó
á hálfri jörðinni. Sigríður hét kona hans. Sigmundur hét sá, sem
bjó á hinum helmingi Bárðarstaða. Hjá honum var fjárgeymslu-
piltur, sem Sigurður hét. Svo var þar húsmaður, cr Gísli hét. Ein
af vinnukonum, sem Ragnhildur hét, sat á rúmi með barn gagn-
vart cinum glugganum. Aftur heyrðist eitthvað úti fyrir, og jafn-
framt var skotið með afli miklu broddstaf innum gluggann rétt
við vanga Ragnhildar en mciddi hana þó ekki. Var síðan steinum
kastað inn um gluggana, og eitt skiptið sem oftar var allvænum
steini kastað ofan um reykháfinn á eldhúsinu. Stór pottur var
yfir hlóðunum með sjóðandi graut. Steinninn braut pottinn og
spillti niður grautnum, en Sigríði húsfreyju sakaði ekki, sem við
grautarsuðuna var.
Á svona brellum og brögðum gekk í tvær til þrjár vikur. Hald-
ið var, að þetta hlyti að vera afturganga eða draugur, sem sendur
væri til höfuðs einhverjum eða öllum á heimilinu, við þetta yrði
ckki vært lcngur.
Þessi draugagangur fréttist um allar nærliggjandi sveitir, og
64
Goðasteinn