Goðasteinn - 01.09.1973, Page 67

Goðasteinn - 01.09.1973, Page 67
var Ögmundur bóndi að því kominn að flytja burt af heimili sínu með allt sitt. Eitt sinn gekk hann yfir að Árnastöðum, sem standa hinum megin árinnar, kölluð Fjarðará. Hann hitti að máli Pál Guttormsson, sem þar bjó þá, og skýrði honum frá vandræðum sínum. Páll sagði, að það hlyti að vera maður á heimilinu, sem ylli þessum óspektum. Ögmundur sagði, að það væri ómögulegt, af þvf tröllaukin voðaspor hefðu sézt liggja frá Fljótsdalshéraði út Bárðarstaðahálsinn og stefna heim að bænum. „Það mun þó til- fellið“ sagði Páll, ,,að það er maður á heimilinu, sem þetta gjör- ir.“ „Kom þú þá yfir um og sannaðu það,“ sagði Ögmundur. Svo Páll tók byssu sína, sem var ramgjör, hlóð hana vænu skoti, tók stingkorða langan, sem brúkaður var við hákarlaveiðar, Þannig búinn gekk hann yfir að Bárðarstöðum. Hann fyrirbauð öllum að ganga fram úr baðstofunni, þegar að myrkur væri komið, og út um hvern þann glugga, sem skugga kynni að bregða fyrir að utan, kvaðst hann skjóta. Hann dvaldi þar þrjár nætur, og bar ekkert á draugagangi. Að því búnu fór hann heim og sagði þá, að það væri Gísli húsmennskumaður og Sigurður fjárgeymslupiltur, sem væru draugarnir. Þeir voru svo teknir og fluttir til Ketilsstaða á Völlum og afhentir Pétri Hafstein sýslumanni, seinna amtmanni, föður Hannesar Hafsteins ráðherra. Hafstein var gott yfirvald og vinsæll af alþýðu. Sökudólgarnir meðgengu strax, að þeir hefðu verið draugar og valdið ósköpunum. En Gísli bar það fram, að Guðbrandur bóndi á Ormsstöðum í Eiðaþinghá hefði komið sér til þess að verða draugur. En allir vissu, að það var ekki satt, því það fór ekkert misjafnt orð af Guðbrandi. Hann var sonur Þorláks prests, eitt sinn á Skinnastað og Svalbarði, Hallgrímssonar á Ósi, Einarssonar. Móðir Þorláks prests var Sigríður dóttir Þorláks prófasts Þórarinssonar, skáldsins. En Sig- urður bar það, að Gísli hefði fengið sig í fjarveru hans að halda uppi prakkaraskapnum og gefið sér rósrauðan leirdisk fyrir, sem þó var brotinn, og lofað sér meiru af þvílíku tagi. Þorpararnir voru í haldi hjá sýslumanni um tíma, og stóð Gísli ávallt á hinu sama, að Guðbrandur hefði verið driffjöðrin í öllu saman. Svo bar það til eitt sinn, þegar sýslumaður var að yfir- heyra strákana, að hann vindur sér snögglega að stofuglugganum Goðasteinn 65

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.