Goðasteinn - 01.09.1973, Síða 72
morgun, og þá var þokan hin sama. Mér tók að leiðast, að geta
ekki haldið áfram ferðinni; fór út að Melum, sem er þriðji bær
fyrir utan Hamborg. Þar bjó Andrés Hermann Kerúlf, sonur
Jörgen Kerúlfs læknis, sem eitt sinn bjó á Brekku í Fljótsdal.
Sonur Andrésar hét Eiríkur. Ég fór þess á leit við hann, hvort ég
mundi geta fengið fylgd vestur yfir heiðina. Hann kvað það ekki
hægt, en léði mér áttavita, og sagði mér eftir hvaða striki ég skyldi
ganga. Ég lagði upp á heiðina, og hraðaði göngu sem mest ég
mátti. Mér er í fersku minni, hvað ömurlegt það var, að vera einn
á ferð á löngum fjallvegi í glórulausri þoku; og svo var heiðin
öll þakin þykku lagi af vikurösku. Snjórinn var mikið farinn að
þiðna og víða hlánaður. En hvergi gekk ég á hreinni jörð, því
askan huldi allt; þykkust var hún í öllum lautum og þar sökk ég
djúpt niður í hana. Ég hefði ekki komist af heiðinni þann dag,
ef ég hefði ekki haft áttavitann, sem ég var af og til að líta á.
Ég var vongóður um, að ég mundi komast af heiðinni til manna-
byggða, og vissi, að ég mundi mæta gestrisni hjá Jökuldælingum,
að hvaða bæ sem ég kæmi. Að réttu lagi átti ég að koma ofan að
Klausturseli, sem er austanmegin við Jökulsá, en Hákonarstaðir
eru þar á móts við að vestan. - Merki heitir næsti bær fyrir utan
Klaustursel. - Að lyktum fann ég að fór að halla undan fæti, og
var ég þá fljótlega kominn ofan að Jökulsá á Dal, þar sem hún
valt áfram á milli kletta, kolmórauð á lit. Og sama var þokan.
Ég stóð um stund kyrr, óráðinn í, hvort ég skyldi halda upp með
ánni eða ofan eftir út með henni, og varð það úr, að ég tók öfuga
átt, hélt úteftir, og komst ekki til bæjar fyrr en að Gauksstöðum,
utarlega í dalnum, og átti beztu nótt hjá hjónunum þar, Guð-
brandi Erlendssyni og Sigríði Hávarðsdóttur. Þau voru þá að búa
sig til Ameríku, og urðu seinna velgjörðarmenn mínir. Þau búa
nú við Hallson, N. Dak. - Ég vissi seinna, að ég hafði komið
ofan að Jökulsá skammt fyrir utan bæinn Merki. - Á föstudaginn
í glaða sólskini hélt ég frá Gauksstöðum, upp með ánni að austan,
upp að Merki, fór þar yfir um ána á drætti og upp að Hákonar-
stöðum; var þar um kyrrt um daginn. Svo næsta dag hélt ég
ásamt piltinum, sem ég var að sækja, austur yfir heiði að Brekku
í Fljótsdal. Þar bjuggu merkishjónin Gunnar Gunnarsson og Guð-
70
Goðasteum